Fara í efni

Fjallar um Jón Stefánsson og Matisse

Margrét Elísabet Ólafsdóttir.
Margrét Elísabet Ólafsdóttir.

Margrét Elísabet Ólafsdóttir, lektor í listgreinakennslu við Háskólann á Akureyri, heldur þriðjudagsfyrirlestur í dag, 15. nóvember, kl. 17:00-17:40 í Ketilhúsinu á Akureyri. Yfirskrift fyrirlestursins er Jón Stefánsson og listaskóli Matisse. Aðgangur að fyrirlestrinum er ókeypis og öllum heimill.

Margrét Elísabet er doktor í list- og fagurfræði frá Parísarháskóla og leggur stund á rannsóknir á íslenskri myndlist. Hún hefur starfað sem sýningarstjóri, gagnrýnandi, háskólakennari og blaðamaður. Í fyrirlestri sínum fjallar hún um dvöl Jóns Stefánssonar í listaskóla Matisse í París og þau áhrif sem Jón hafði í kjölfarið á íslenska myndlistarmenn.

Jón Stefánsson er einn af frumherjum íslenskrar myndlistar. Hann hafði mikil áhrif á aðra myndlistarmenn sem voru honum samtíða, s.s. Ásgrím Jónsson, Kristínu Jónsdóttur og Þorvald Skúlason. Jón hóf myndlistarnám í Kaupmannahöfn en fór síðan til Parísar og sótti listaskóla Henri Matisse. Matisse stofnaði skólann árið 1908 og starfrækti hann í þrjú ár. Ætlun hans var að miðla hugmyndum sínum um málaralistina til nemenda sem flestir komu frá Norðurlöndunum og Þýskalandi. Þremur árum síðar komst hann að þeirri niðurstöðu að þau áform hefðu mistekist.

Fyrirlesturinn er í röð fyrirlestra síðdegis á þriðjudögum í vetur og er um að ræða samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Gilfélagsins, VMA, Myndlistarfélagsins og Háskólans á Akureyri.