Fjallar um hinsegin samfélagið í þriðjudagsfyrirlestri
Í dag, þriðjudaginn 24. febrúar kl. 16:15, heldur Nicola van Kuilenburg, nemandi í þjóðfræði og safnafræði við Háskóla Íslands, þriðjudagsfyrirlestur í Listasafninu á Akureyri. Fyrirlesturinn fer fram á ensku og er aðgangur ókeypis.
Nicola van Kuilenburg hefur starfað hjá Menningarmiðstöð Þingeyinga frá árinu 2023. Í fyrirlestrinum verða kynntar tvær sýningar, Út úr skuggunum og Bakslag, sem Nicola vann að í tengslum við Hinsegin hátíð 2025 og voru í Safnahúsinu á Húsavík sumarið 2025.
Út úr skuggunum fjallar um þróun sýnileika hinsegin fólks í Þingeyjarsýslu. Þar eru dregnar fram staðbundnar sögur sem áður höfðu ekki átt sér stað í safninu né í opinberri frásögn af hinsegin samfélaginu á Norðausturlandi. Sýningin hefst á skrásettri ævi Guðmundar Sigurjónssonar Hofdal, íþróttamanns frá Mývatnssveit sem var dæmdur í fangelsi árið 1924 fyrir kynferðislegt samband við karla með samþykki beggja aðila, og leiðir gesti áfram í átt að síðari tímamótum opinberrar viðurkenningar, svo sem hjúskaparlögum sem tryggja jafnan rétt til hjónabands.
Bakslag beinir sjónum að samtímanum og er viðbragð við aukinni andúð í garð hinsegin fólks, bæði á alþjóðavísu og hér á landi. Í sýningunni er skoðað hvernig tungumál, tákn og opinber umræða móta daglegt líf hinsegin samfélagsins.
Í fyrirlestrinum er einnig fjallað um hvernig mótun beggja sýninga byggðist á hagnýtum sýningarstjórnarlegum ákvörðunum, þar sem reynsla hinsegin fólks var sett í öndvegi og miðað var við breiðan hóp almennra gesta.
Þriðjudagsfyrirlestrarnir eru samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, VMA, Myndlistarfélagsins og Gilfélagsins.