Fara í efni

Fjallað um líknardráp í þriðjudagsfyrirlestri

Fyrirlesari dagsins, Guðmundur Heiðar Frimannsson.
Fyrirlesari dagsins, Guðmundur Heiðar Frimannsson.

Heimspekingurinn Guðmundur Heiðar Frímannsson heldur fyrirlestur í dag, þriðjudaginn 24. febrúar, kl. 17 í Ketilhúsinu sem hann nefnir Á dauðans tími að vera óviss? 

Í fyrirlestri sínum skoðar Guðmundur Heiðar stöðu líknardráps og reynir að svara því hvort við eigum að geta ráðið dauðastund okkar sjálf. Hvaða rök hníga til þess og hvað mælir gegn því? Reynt verður að rökstyðja þá skoðun að við vissar kringumstæður kunni það að vera siðferðilega réttlætanlegt að stytta líf sitt og fá aðstoð til þess.

Guðmundur Heiðar Frímannsson er prófessor í heimspeki við Háskólann á Akureyri. Hann lauk doktorsprófi í siðfræði frá Háskólanum í St. Andrews í Skotlandi.

Fyrirlesturinn er í röð svokallaðra þriðjudagsfyrirlestra sem efnt er til á þriðjudagseftirmiðdögum í Ketilhúsinu á vegum listnámsbrautar VMA, Listasafnsins á Akureyri, Háskólans á Akureyri og Myndlistaskólans á Akureyri.

Enginn aðgangseyrir er á fyrirlesturinn og eru allir velkomnir.