Fara í efni

Fjallað um Katrínu saumakonu

Heiða Björk Vilhjálmsdóttir segir frá Katrínu Jósepsdóttur saumakonu.
Heiða Björk Vilhjálmsdóttir segir frá Katrínu Jósepsdóttur saumakonu.

Í dag, þriðjudaginn 2. apríl kl. 17:00-17:40 verður Heiða Björk Vilhjálmsdóttir safnfræðslufulltrúi Listasafnsins á Akureyri með Þriðjudagsfyrirlestur í Listasafninu undir yfirskriftinni Kata saumakona: Frá hugmynd til sýningar. Aðgangur er ókeypis.

Í fyrirlestrinum mun Heiða Björk fjalla um listsköpun Katrínar Jósepsdóttur (1914-1994) og skoða sérstaklega hvernig nálgast má verk hennar með fræðslu og skapandi starf í huga. Katrín fór snemma að sauma og var því oftast kölluð Kata saumakona. Á efri árum fór hún hóf að gera tilraunir í myndlist. Málverk Katrínar eru einlæg og flokkast til naívisma og virka sem mikilvæg hvatning fyrir börn og fullorðna, allir geta skapað og útkoman getur komið á óvart.

Fjallað verður sérstaklega um sýninguna Einfaldlega einlægt sem sett var upp í safnfræðslurými Listasafnsins á síðasta ári. Málverkin á sýningunni komu úr gjöf sem ættingjar Katrínar færðu Listasafninu á Akureyri og markmið hennar var tvískipt. Annars vegar að gefa safngestum færi á að virða fyrir sér heildarmynd verka hennar og hins vegar var sýningin hugsuð sem fræðslusýning, þar sem safngestir fengu tækifæri til fræðslu og sköpunar. Sagt verður frá tilurð sýningarinnar, framsetningu, miðlun og helstu niðurstöðum.

Þriðjudagsfyrirlestrar eru sem fyrr samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, VMA, Gilfélagsins og Myndlistarfélagsins á Akureyri.