Fara í efni

Fimmtíu ára ferill ljósmyndara

Marco Paoluzzo, ljósmyndari.
Marco Paoluzzo, ljósmyndari.
Í dag, þriðjudaginn 11. febrúar kl. 17-17.40, heldur Marco Paoluzzo, ljósmyndari, fyrirlestur í Ketilhúsinu undir yfirskriftinni Ljósmyndun í 50 ár. Þar mun hann tala um rúmlega 50 ára feril sinn í ljósmyndum og varpa ljósi á áhrifavalda. Einnig mun hann fjalla um útgefnar bækur sínar sem og þær sem enn eru óútgefnar. 
 
Paoluzzo hóf ljósmyndun árið 1968, í byrjun sem áhugamaður en sem fagmaður frá 1980, eftir nám í ljósmyndaskóla í Vevey í Sviss. Bróðurpartur mynda Paoluzzo sýna landslag sem hann hefur tekið á ferðalögum sínum. Paoluzzo notar ekki stafræna tækni og myndar enn á svart-hvítar ljósmyndafilmur. 
 
Fyrirlesturinn í dag er liður í fyrirlestraröðinni Þriðjudagsfyrirlestrar sem eru samstarfsverkefni Listasafnsins á Akureyri, Gilfélagsins, VMA, Myndlistarfélagsins og Háskólans á Akureyri.