Fara í efni

Félagsleg samskipti hið ósýnilega afl

Dr. Viðar Halldórsson prófessor við HÍ í VMA í gær.
Dr. Viðar Halldórsson prófessor við HÍ í VMA í gær.

Félagsleg samskipti eða hið ósýnilega afl, félagslegir töfrar, voru megininntak erindis sem dr. Viðar Halldórsson félagsfræðingur í Háskóla Íslands hélt í gær í VMA fyrir starfsfólk skólans.

Viðar er prófessor í félagsfræði við HÍ og margreyndur fyrirlesari og hefur til fjölda ára fjallað um samskipti fólks frá ýmsum hliðum. Síðustu daga hefur hann verið á yfirreið hér nyrðra og fyrirlesturinn í gær var sá áttundi sem hann flutti á tveimur dögum.

Árið 2024 sendi Viðar frá sér bókina Sjáum samfélagið þar sem hann veltir fyrir sér hinu óljósa fyrirbæri sem kallað er samfélag. Hann reynir að svara þeim spurningum hvernig samfélagið móti hugsanir okkar, hugmyndir, hegðun og sjálfsmynd. Viðar leitast við í bókinni að greina nútímasamfélagið og þróun þess og varpar ljósi á félagslega töfra samfélagsins og vaxandi firringu þess.

Í erindi sínu í gær nefndi Viðar að stór hluti samskipta fólks færi fram á skjá, hvort sem það væri í skólanum, innkaupum, vinnu, fundum, að fylgjast með fréttum, afþreyingu, að borga reikninga o.s.frv. En ekkert kæmi þó í stað skynörvunar og snertingar því samskipti örvi myndun hormóna og boðefna í heilanum sem stuðli að vellíðan og samheldni. Félagsauður (e. social capital) segir Viðar að sé aldrei nægilega mikið metinn. Í honum liggi verðmæti sem feli í sér traust milli fólks, feli í sér sameiginlegar skyldur og stuðning og samvinnu. Félagsauðurinn sé verðmæti fyrir hvern einstakling og samfélagið sem heild en skortur á félagsauði geti skapað mikinn vanda.