Fara í efni

Fab Lab smiðja opnuð í VMA á næsta ári

Stjórn FabEy á sínum fyrsta fundi í gær.
Stjórn FabEy á sínum fyrsta fundi í gær.

Á næsta ári verður Fab Lab stafrænni smiðju í Eyjafirði ýtt úr vör og verður hún til húsa hér í VMA. Fab Lab smiðjan er ætluð frumkvöðlum, nemendum, almenningi, fyrirtækjum og stofnunum. Lengi hefur verið beðið eftir því að slíkri smiðju yrði komið á fót hér á svæðinu og nú er það loks að verða að veruleika. Við það er miðað að smiðjan verði tilbúin í húsakynnum VMA við upphaf næsta skólaárs.

Stofnfundur félagsins FabEy, hollvinafélags um stofnun og rekstur smiðjunnar, var haldinn á Akureyri í gær. Samþykktir FabEy staðfestu fulltrúar Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, Verkmenntaskólans á Akureyri, Akureyrarbæjar og Símenntunarmiðstöðvar Eyjafjarðar.

Í stjórn FabEy voru kjörnir aðalmenn: Sigríður Huld Jónsdóttir, aðstoðarskólameistari VMA, formaður, Albertína Friðbjörg Elíasdóttir, atvinnumálafulltrúi Akureyrarbæjar, Benedikt Barðason, áfangastjóri VMA, Erla Björg Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri SÍMEY og Sigurður Steingrímsson, verkefnisstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands á Akureyri.

FabEy mun gera samstarfssamning við VMA um rekstur Fab Lab smiðjunnar. Stefnt er að því að ráða tvo starfsmenn að smiðjunni.

Þau Sigríður Huld, aðstoðarskólameistari, og Benedikt Barðason, áfangastjóri, fagna þessum áfanga sérstaklega fyrir skólastarf í VMA og þau eru sannfærð um að smiðjan muni nýtast sérlega vel fyrir margar deildir skólans. En auk þess undirstrika þau að þó svo að smiðjan verði staðsett í húsakynnum VMA sé hún ekki bara hugsuð fyrir VMA, hún sé fyrir nemendur á öllum skólastigum, fyrirtæki, stofnanir og allan almenning sem hafi áhuga á að tileinka sér þessa tækni.

Í samþykktum fyrir FabEy kemur fram að með rekstri á stafrænni smiðju í Eyjafirði sé stefnt að því að auka þekkingu skólafólks og almennings á persónumiðaðri framleiðslu og stafrænum framleiðsluaðferðum, verkefninu sé ætlað að auka áhuga á verk- og tækninámi í grunn- og framhaldsskólum og efla hæfni til nýsköpunar í námi og atvinnulífi. Þá er einnig tilgreint það markmið með verkefninu að skapa vettvang fyrir nýsköpun og efla samkeppnishæfni fyrirtækja, menntastofnana og nemenda.

Auk Akureyrar hafa sveitarfélög við Eyjafjörð sýnt mikinn áhuga á verkefninu og mun FabEy gera sérstaka samninga við hvert og eitt sveitarfélag sem vill taka þátt. Nú þegar hafa Eyjafjarðarsveit og Hörgárbyggð ákveðið að koma að verkefninu. Auk þess hafa fagfélög við Eyjafjörð lofað stuðningi. 

Fab Lab stendur fyrir „Fabrication Laboratory“ og er alþjóðlegt net stafrænna smiðja með tækjum og tólum til að búa til nánast hvað sem er. Fab Lab gefur fólki á öllum aldri tækifæri til þess að þjálfa sköpunargáfuna og hrinda hugmyndum sínum í framkvæmd með því að hanna, móta og framleiða hluti með aðstoð stafrænnar tækni. Í Fab Lab smiðjum er tækjabúnaður af fullkomnustu gerð; fræsivél, vinylskeri, laserskeri, þrívíddarprentarar, rafeindaverkstæði til ýmiskonar tækjasmíða, rammar og efni til þess að þrykkja t.d. á boli, borðtölvur með uppsettum forritum o.fl.

Reynslan af Fab Lab smiðjunum sem þegar hefur verið komið á fót hér á landi sýnir að tæknilæsi og tæknifærni almennings eykst og þær hvetja ungt fólk til tæknimenntunar, sem mikil þörf er á, þær auka þekkingu á persónumiðaðri framleiðslu, stafrænum framleiðsluaðferðum í iðnaði og síðast en ekki síst eru Fab Lab smiðjurnar til þess fallnar að efla nýsköpun í landinu.

Eigandi Fab Lab vörumerkisins er Massachusetts Institute of Technology í Bandaríkjunum en Nýsköpunarmiðstöð Íslands hefur umsjón með verkefninu á Íslandi. Áhersla er lögð á samstarf Fab Lab smiðjanna á Íslandi og mynda þær samstarfsvettvang, „Fab Lab Ísland”, þar sem þekkingu og reynslu er miðlað milli þeirra. FabEy mun verða þátttakandi í þessu samstarfi. 

Á meðfylgjandi mynd er nýkjörin stjórn FabEy. Frá vinstri Benedikt Barðason, Sigríður Huld Jónsdóttir, Sigurður Steingrímsson, Erla Björg Guðmundsdóttir og Albertína Friðbjörg Elíasdóttir.