Fara í efni

Stórar spurningar og kvenleg hamskipti

Natalie Saccu de Franchi.
Natalie Saccu de Franchi.

Í dag, þriðjudaginn 22. október, kl. 17-17.40 heldur franska kvikmyndagerðarkonan Natalie Saccu de Franchi fyrirlestur í Listasafninu á Akureyri undir yfirskriftinni „Fátt eitt verður mér að veruleika....  

Í þessum þriðjudagsfyrirlestri, sem er samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Gilfélagsins, VMA, Myndlistarfélagsins og Háskólans á Akureyri, fjallar Natalie um verk sín sem eru í formi tilraunkenndrar vídeólistar. Hún varpar fram spurningum um tvöfeldni mannsins og sýnir fjölmörg tilfelli kvenlegra hamskipta.

Íslandsfrumsýningar verða á tveimur verka hennar þar sem fjallað er um rannsóknir á sjálfsmyndarkreppunni. Fyrra verkið, Hollie, er lofgjörð til listamannsins Georgs Guðna og byggt á ljóðinu Götuljóð / Poema de la reue eftir Sigurð Pálsson. Seinna vídeóið er stuttmynd með titilinum «Percival’s Perceived Pebble»; or en það er frumraun hennar í leikstjórn í samvinnu við breska kvikmyndagerðarmanninn Paul Hill.

Natalie Saccu de Franchi er arkitekt og kvikmyndagerðarkona sem vinnur og býr í París í Frakklandi.