Fara í efni

Lokafundur í AppMentor

Um miðjan september fóru Harpa Birgisdóttir og Hrafnhildur Sigurgeirsdóttir til Hereford til að sitja lokafund í verkefninu AppMentor sem VMA hefur tekið þátt í undanfarin tvö ár. Verkefnið gekk út á að þarfagreina um það bil 60 smáforrit eða öpp með hliðsjón af því þegar skóli, vinnustaður og nemi þurfa hafa samskipti í rauntíma. Lokaafurð verkefnisins er heimasíða sem býður upp á námskeið á netinu í tengslum við notkun á átta smáforritum sem vel koma til greina til samskiptanotkunar þegar nemandi er í vinnustaðanámi á vegum skóla. Smáforritin eru Trello, WhatsUp, Facebook, Messenger, Workplace, Workchat, Wunderlist og Instagram. Hægt að kynna sér smáforritin og kosti þeirra og galla þegar kemur að samskiptum milli skóla, vinnustaðar og nema. Hér er hægt að nálgast heimasíðu verkefnisins.

AppMentor hefur nú þegar verið kynnt í Háskólanum Abo Akademi í Finnlandi fyrir háskólakennara sem kenna kennslufræði fyrir verkgreinakennara framtíðarinnar. Þau vildu fá leyfi til þess að innleiða verkefnið hjá sér og einnig nota það sem sýnidæmi fyrir næsta Erasmus KA2 verkefni hjá sér. AppMentor hefur líka verið kynnt í Högskolan pa Aland í Finnlandi við góðar undirtektir og hafa verkgreinakennarar frá Bergen í Noregi lýst yfir áhuga sínum að innleiða námskeiðið á heimsasíðunni fyrir atvinnulífið, skólann og nemendurna.

Áframhald verður á samstarfi VMA við Finnana, Hollendingana og Frakkana í nýju Erasmus verkefni sem er til þriggja ára og ber vinnuheitið VET@Work. Verkefnið snýst í megindráttum um að tengja enn betur saman atvinnlíf og skóla þegar kemur að vinnustaðaþjálfun nemenenda. Skólinn hefur fengið Huldu Hafsteinsdóttur hársnyrtimeistara og eiganda að Medullu hársnyrtistofu til liðs við okkur í því verkefni.

Hér að neðan má sjá myndasafn úr ferðinni.