Eyrún Lilja er Ungskáld 2026
Eyrún Lilja Aradóttir (f. 2001) er Ungskáld 2026. Þetta var kunngjört á Amtsbókasafninu síðdegis í gær. Þrjátíu hugverk bárust frá fimmtán höfundum að þessu sinni í ritlistasamkeppni Ungskálda. Dómnefnd valdi smásögu Eyrúnar Lilju, Sturtan, þá bestu. Katrín Día Gunnlaugsdóttir (f. 2004) átti smásögur í bæði öðru og þriðja sæti, Miðbæjar-Darri og Þriðja augað.
Í nokkrum þakkarorðum á Amtsbókasafninu í gær sagði Eyrún Lilja að ritlistasamkeppni Ungskálda hafi verið sér mikil hvatning til þess að skrifa og sagði hún þennan vettvang því vera afar mikilvægan. Hún upplýsti að nýverið hafi hún gert útgáfusamning við bókaútgáfuna Sölku og mætti vænta útgáfu hennar fyrstu bókar á næsta ári.
Þess má geta að Eyrún Lilja sigraði einnig ritlistakeppni Ungskálda árið 2023 og í fyrra fékk hún þriðju verðlaun.
Rannveig Karlsdóttir þjóðfræðingur og kennari var formaður dómnefndar. Með henni í dómnefndinni voru Sara Bjarnason, skipuleggjandi Kveldúlfs tónlistarhátíðar og verkefnastjóri Gjörningahátíðarinnar A!, og Kött Grá Pjé, tónlistarmaður og rithöfundur.
Að Ungskáldaverkefninu standa Amtsbókasafnið á Akureyri, VMA og MA, Ungmennahúsið í Rósenborg og atvinnu-, markaðs- og menningarteymi Akureyrarbæjar. Verkefnið er styrkt af Uppbyggingarsjóði Norðurlands eystra og Akureyrarbæ.
Anna Lovísa Arnarsdóttir var með tónlistaratriði á Amtsbókasafninu í gær.
Eftirfarandi er fyrstu verðlauna saga Eyrúnar Lilju, Sturtan:
Sturtan
Ég set hendina undir vatnið. Það er hvorki of heitt né of kalt. Það er fullkomið. Ég geng inn í sturtuna og loka sturtuklefanum á eftir mér. Ég veit ekki um betri tilfinningu en að fara í heita sturtu eftir langan dag. Ég fer með hausinn undir bununa. Kannski hefði ég ekki átt að bleyta á mér hárið? Ég fór síðast í sund á miðvikudaginn og í dag er föstudagur. Það er í lagi að þvo hárið í dag. Það verður að duga. Hárið mitt fyllist af vatni sem lekur niður andlit mitt. Ég loka augunum og lyfti höfðinu að sturtubununni. Ég dreg inn andann og sest rólega niður á sturtubotninn. Ég hef heyrt að maður geti fengið sveppasýkingu af því að sitja á sturtubotninum. Ég heyri rödd mömmu segja mér þetta þegar við vorum í sundi og ég lagðist þvert á gólfið í sturtuklefanum. Hver veit, kannski er það satt, en mér er sama.
Ég leggst niður. Sturtubotninn er ekki nægilega stór til að ég geti legið þversum, þannig að ég set fæturna upp í loft og læt þá hvíla við sturtuvegginn. Ég loka augunum og læt heita vatnið gusa niður á mig. Nú get ég slakað á. Ég fer yfir daginn í hausnum á mér. Ég hefði átt að svara betur fyrir mig þegar Alma sagði fyrir framan allan bekkinn að ég væri dramatísk fyrir að gráta þegar kennarinn öskraði á einn strák fyrir að vera í símanum. Ég veit að kennarinn var ekki að öskra á mig, en ég verð hrædd þegar fólk öskrar. Ég skil ekki af hverju aðrir verða ekki hræddir.
Ég lít í kringum mig. Það eru fjórar tegundir af sápu, ein hárnæring, tvær rakvélar og bleikur baðskrúbbur frá Body Shop sem allar stelpur á aldrinum tíu til fimmtán ára fá í jólagjöf frá fólki sem þekkir þær ekki neitt. Ég hef þurft að henda að minnsta kosti fjórum svona, öllum í mismunandi litum. Ætti ég að raka mig? Ég veit að ég þarf þess ekki. Mamma segir að stelpur í sjötta bekk þurfi ekki að raka sig, en samt er ég komin með hár út um allt. Ég teygi mig í rakvélina hennar mömmu. Hvar á ég að byrja?
Ég byrja á leggjunum. Ég hef oft séð konur í sjónvarpinu vera að raka á sér leggina. Þær nota fyrst sápu og raka sig síðan. Ég geri það sama. Ég strýk yfir nýrakaða leggina og finn hvað þeir eru silkimjúkir. Hvað næst? Lærin? Það eru nokkur hár þar. Ég held áfram. Hvað langar mig að verða þegar ég verð stór? Læknir? Geimfari? Skrifstofukona? Lögreglukona? Snyrtifræðingur? Bakari? Úff, ég veit það ekki, en mig langar að vita það.
Mamma og pabbi eru alltaf að spyrja mig. Mér finnst eins og ég eigi að vita svarið nú þegar. Eins og ég eigi að vera búin að skipuleggja öll næstu skref í framtíðinni. Ég hef tekið eftir því að ef ég segi barnalæknir verða þau hrifin og segjast vera stolt af mér, en ef ég svara starfsmaður í Krónunni fara þau að hlæja. Skrítið. Mamma þolir ekki vinnuna sína. Hún er líka alltaf í símanum að rífast við fólk. Pabbi er smiður og ég held að honum líki það ágætlega, en hann smíðar aldrei neitt heima. Ef það þarf að gera við eitthvað endar það alltaf með því að mamma lagar það og verður þar af leiðandi pirruð út í pabba. Ég held að það sé ömurlegt að vera fullorðin. Þau virðast svo sjaldan vera glöð. Í þau skipti sem ég hef séð þau virkilega glöð eru þau með vínglas í annarri hendinni og mér er skipað að fara að sofa. Ég ætla ekki að vera eins og þau.
Ég er búin að raka bæði lærin. Ég horfi á beran líkamann minn og velti því fyrir mér hvar ég geti rakað næst. Það eru nokkur hár á handleggjunum mínum. Þau verða að duga. Ég renni rakvélinni í gegnum ljósu hárin á handleggnum mínum. Ég sný rakvélinni að mér. Hún er full af ljósum hárum. Ég þarf að losa þau. Vinkona mín sagði mér að ég ætti að nota vatnið úr sturtunni til að þrífa rakvélina eftir að hún sá sárin á puttunum mínum. Ég hélt að eina leiðin til að losa hárin úr rakvélinni væri að strjúka puttunum yfir rakvélarblaðið, en ég veit betur í dag. Suma þekkingu fæðist maður ekki með. Hvernig átti ég að vita þetta? Ekki er þetta kennt í skólanum. Ég horfi á ljósu hárin skolast niður í niðurfallið. Hvert fara þau? Hvert fer allt óhreina vatnið úr sturtunni? Í sjóinn? Hvernig? Með lögnum?
Ég ímynda mér hvernig þetta var allt áður fyrr, þegar fólk fór bara í bað einu sinni í mánuði og heil fjölskylda notaði sama vatnið. Ég veit að ég geri mér ekki alltaf grein fyrir því hversu heppin ég er. Amma og afi minna mig stundum á það. Lyktaði fólk ekki illa? Ég á erfitt með að ímynda mér þetta. Mér finnst þetta svo frábrugðið veruleikanum sem við búum við í dag. Það sem mér finnst einnig merkilegt er að þegar ég ímynda mér fólk sem bjó í torfhúsum sé ég fyrir mér fólk sem lifði á ísöld eða fyrir mörg þúsund árum. En amma sagði mér að afi hennar hefði alist upp í torfhúsi. Þeim finnst við líklegast vera ofdekruð. Við erum það líka. Ofdekruð. Við kvörtum yfir heimanámi, þegar það er fiskur í matinn, þegar síminn okkar verður batteríslaus, þegar við erum neydd í matarboð hjá fólki sem við þekkjum ekki neitt eða þegar við fáum einfaldlega ekki það sem okkur langar í. Við erum búin að gleyma okkur. Ég held að maður verði ekki virkilega þakklátur fyrir það sem maður hefur fyrr en maður missir það sem maður tekur sem sjálfsögðum hlut. Hvað ef á morgun færi allt rafmagn af í öllum heiminum? Ekkert ljós, enginn sími, enginn ísskápur, engir bílar. Ekkert. Hvað yrði eftir? Við. Við stöndum eftir. Við þurfum ekki rafmagn til að lifa af. Fólk lifði án rafmagns í mörg hundruð ár. Hvað með símana okkar? Myndum við lifa af án snjallsíma? Ég veit að ef ég væri án snjallsíma myndi mér líða betur. Mér myndi fyrst byrja að leiðast og ég myndi sakna símans. Sakna afþreyingarinnar. Sakna þess að geta slökkt á heiminum og sökkt mér í glansmyndir annarra á samfélagsmiðlum. En hvað er að því að leiðast? Hvað gerist þá?
Ég man vel eftir því þegar mér leiddist þegar ég var yngri. Það var fyrst ömurlegt að vita ekki hvað maður ætti að gera, en síðan gerðist eitt magnað. Ég fór að hugsa. Hugsa um hvað ég gæti gert til að láta mér ekki leiðast. Ég fór að horfa í kringum mig og sá hvað það var margt hægt að gera. Ég sá að valmöguleikar mínir voru endalausir. Vildi ég fara út að leika? Ef veðrið var slæmt fann ég mér eitthvað að gera inni. Semja lag, búa til leik, semja leikrit fyrir foreldra mína og frumsýna það um kvöldið. Næstum allt var mögulegt. Kannski er síminn ekki svo góð þróun fyrir okkur? Eins og amma segir stundum: „Allt er gott í hófi.“ Því er ég sammála. Ég skima yfir líkamann minn. Strýk yfir örin sem ég hef öðlast í gegnum tíðina. Örið á vinstra hnénu fékk ég þegar ég datt á hjóli í fyrsta bekk. Örið á hægra handarbakinu fékk ég þegar ég var að losa sjávarfugl sem hafði fest sig í netinu okkar pabba þegar við vorum að veiða. Örið vinstra megin neðan við naflann fékk ég þegar ég fékk botnlangakast og það þurfti að taka botnlangann úr mér. Ég held að öll ör segi einhverja sögu og sögurnar geti verið mismunandi. Góðar, slæmar, fyndnar, sárar eða mannseflandi. En allar sögur taka einhvern veginn enda, eins og örin okkar. Með tímanum gróa þau eða verða hluti af okkur.
Ég er svo þreytt að ég gæti sofnað í sturtunni. Ég loka augunum og strax heyri ég lag. Það er alltaf lag á heilanum á mér. Það er bara mismunandi hvort ég leyfi því að pirra mig eða ekki. Stundum er það hávært og stundum hljómar það eins og bakgrunnstónlist sem heyrist í fataverslun. Ég hef alltaf haldið að allir séu alltaf með eitthvað lag á heilanum. Það var ekki fyrr en ég fór í ADHD-greiningu sem ég komst að því að svo er ekki. Heilinn minn stoppar aldrei. Stundum finnst mér heilinn minn skiptast í þrjá hluta. Einn hefur áhyggjur og vill alltaf að ég hafi varann á og hugsi hlutina milljón sinnum áður en ég tek ákvörðun. Annar hluti er alltaf bjartsýnn og smá kærulaus. Hann hvetur mig alltaf til að stökkva á tækifærin og hugsa bara seinna. Sá þriðji er plötusnúðurinn. Hann sér um að hafa alltaf að minnsta kosti eitt lag í gangi. Stundum er plötusnúðurinn í stuði og hefur fleiri lög í gangi í einu. Þá verð ég þreytt, eins og núna.
Ég þarf að þvo á mér hárið. Ég gríp hársápuna í bleiku umbúðunum. Hún hlýtur að vera fyrir mitt hár, því ég er stelpa. Er samt einhver munur á hárinu á stelpum og strákum? Ég veltifyrir mér hver hann sé. Hver ákvað að bleikur væri stelpulitur og blár strákalitur? Ég set sápuna í hárið. Hún lyktar eins og jarðarber og vanilla. Ég fer með hausinn undir bununa og skola hana vandlega úr. Næst er það hárnæringin. Ég veit að hún þarf að vera í nákvæmlega tvær mínútur í hárinu áður en hún er þvegin úr. Ég veit ekki af hverju, en ég man þegar pabbi fór með mér í sund og mamma minnti hann á að hárnæringin þyrfti að vera í hárinu í tvær mínútur. Ég þoli reyndar ekki að standa kyrr og bíða. Ég fór með pabba í karlaklefann og eftir sundið setti pabbi sjampó og hárnæringu í hárið á mér. Ég man að hann var frekar stressaður. Þegar hann setti hárnæringuna í hárið sagði hann mér að standa grafkyrr og ekki bleyta hárið í tvær mínútur. Hann hélt mögulega að hárið myndi detta af mér ef hárnæringin fengi ekki sínar tvær mínútur. Ég stóð þarna og fylgdist með nöktu körlunum í sturtunni. Allir voru þeir svo alvarlegir. Það er miklu skemmtilegra í kvennaklefanum. Konurnar spjölluðu og það voru alltaf fleiri krakkar þar til að leika við. Tvær mínútur liðu og hárið var enn á mér.
Ég rumska við bank á baðherbergishurðina. Mér bregður og ég verð vandræðaleg. Ég veit ekki af hverju ég er vandræðaleg. Ég var ekki að gera neitt af mér. Það er líklegast vegna þess að ég ligg kviknakin á sturtubotninum. „Elskan mín, flýttu þér nú úr sturtunni. Pabbi þinn var að koma heim og á eftir að fara í sturtu.“ Ég flýti mér að standa upp. „Ég er að verða búin.“
Ég skrúfa fyrir sturtuna og geng út