Ólafur Árni sigraði Sturtuhausinn
Ólafur Árni Haraldsson, nemandi í hársnyrtiiðn, sigraði Sturtuhausinn – söngkeppni VMA í gærkvöld í Gryfjunni. Hann flutti lag Frank Sinatra, My way með miklum glæsibrag. Í öðru sæti varð Hildur Ósk Gunnarsdóttir með lagið Valerie og í því þriðja Embla Sól Allport, hún söng lagið Shallow.
Þessi átta lög voru flutt í Sturtuhausnum:
Embla Sól Allport – Shallow (Lady Gaga og Bradley Cooper)
Jóhanna Celina Jakobs – Ég á líf (Eyþór Ingi Gunnlaugsson)
Ólafur Árni Haraldsson – My way (Frank Sinatra)
Hildur Ósk Gunnarsdóttir - Valerie – (Amy Winehouse)
Sigrún Dalrós Eiríksdóttir – Life goes on (The Sundays)
Árvök Elín Ragnarsdóttir Snædal – The Crippled Lyon (Michael Nesmith and the first National Band)
Sólveig María Svava Haraldsdóttir og Hildur Ósk Gunnarsdóttir – Linger (The Cranberries)
Þórarinn Böðvarsson – Líttu sérhvert sólarlag (Sigríður Thorlacius og Valdimar Guðmundsson)
Kynnar á Sturtuhausnum voru Guðmar Gísli Þrastarson og Kristdór Helgi Tómasson.
Dómarar kvöldsins voru Anna Skagfjörð, Ágúst Þór Brynjarsson og Rúnar Eff.
Eins og venja er til mun Ólafur Árni, sigurvegari í Sturtuhausnum skólaárið 2026-2027, verða fulltrúi VMA í Söngkeppni framhaldsskólanna vorið 2027.
Myndir sem Árni Már Árnason tók - sjá hér
Myndir sem Dagur Kai Konráðsson tók - sjá hér
Myndband af sigurlaginu - sjá hér