Fara í efni

Meiri tæknimaður en tónlistarmaður

Drykkir innbyrðis árið 2026. Haukur Eiríksson hljómborðsleikari og kennari í rafiðngreinum í VMA er …
Drykkir innbyrðis árið 2026. Haukur Eiríksson hljómborðsleikari og kennari í rafiðngreinum í VMA er lengst til hægri. Fyrir framan þá félaga er Haukur við hljómborðið í Músíktilraunum vorið 1986.

Dags daglega kennir Haukur Eiríksson verðandi rafvirkjum og rafeindavirkjum í VMA. En utan skólans bregður hann sér af og til í það hlutverk að setjast við hljómborðið með félögum sínum í hljómsveitinni Drykkjum innbyrðis. Eins og allar alvöru hljómsveitir hafa Drykkir innbyrðis átt endurkomu núna í haust með útgáfu ellefu laga plötu og um liðna helgi voru útgáfutónleikar á Græna hattinum á Akureyri. Fyrr í haust  spilaði hljómsveitin á rokkhátíðinni Eyrarrokki.

Sem fyrr segir eru ellefu lög á nýju plötu Drykkja innbyrðis. Eitt þeirra er Á vit forfeðranna

Það var rík ástæða til þess að félagarnir í Drykkjum innbyrðis kæmu saman í ár og rifjuðu upp þá gömlu og góðu daga. Í ár eru nefnilega nákvæmlega 40 ár síðan hljómsveitin tók þátt í Músíktilraunum og lenti í öðru sæti, sem þótti bærilega gott því hún hafði ekki starfað lengi. Auk hljómborðsleikarans Hauks voru í sveitinni í byrjun Viðar Garðarsson bassaleikari, Eiríkur S. Jóhannsson gítarleikari, Rúnar Örn Friðriksson söngvari og Ingvi R. Ingvason trommuleikari.

Sveitin starfaði ekki í nema rúm þrjú ár. Árið 1987 var Gísli Aðalsteinsson gítarleikari kominn í sveitina í stað Eiríks og 1989 hafði Geir Rafnsson tekið við trommukjuðunum af Ingva. Einnig söng Ólöf Sigríður Valsdóttir með sveitinni um tíma.

Árið 1987 stóðu Ríkisútvarpið á Akureyri (RÚVAK) og Menningarsamtök Norðurlands (Menor) fyrir hljómsveitakeppni og máttu liðsmenn hljómsveitanna ekki vera eldri en 25 ára. Hver hljómsveit sendi eitt lag í keppnina. Akureyrsku sveitirnar Drykkir innbyrðis og Stuðkompaníið tóku þátt sem og tvær hljómsveitir úr Reykjadal í Suður-Þingeyjarsýslu. Niðurstaða dómnefndar var að Stuðkompaníið væri verðugur sigurvegari en Drykkir innbyrðis urðu í öðru sæti.

Allar hljómsveitir þurfa nafn. Drykkir innbyrðis er óneitanlega afar sérstakt nafn á hljómsveit en tilurð þess er ekki ýkja flókin. Einn daginn, í  árdaga sveitarinnar, þegar meðlimir hljómsveitarinnar veltu vöngum yfir hvort gítar og bassi væru stilltir innbyrðis, var Egils drykkjarkassi á gólfi æfingarhúsnæðisins. Eiríkur gítarleikari kastaði þá fram hugmynd að nafni, Drykkir innbyrðis, sem festist við sveitina.

Haukur Eiríksson var á sextánda ári þegar Drykkir innbyrðis tóku þátt í Músíktilraunum. „Við Ingvi vorum í Gagganum og þurftum að fá frí til þess að fara suður og taka þátt í Músíktilraunum. Skólastjóri Gaggans tók þessu ekki mjög fagnandi en við fengum engu að síður frí til suðurferðar,“ rifjar Haukur upp. Hann hafði farið í nokkra orgeltíma en í þá daga og allar götur síðan hefur hann fyrst og fremst verið sjálfmenntaður í tónlist.

Haukur, Viðar og Ingvi höfðu aðeins verið að leika sér saman í tónlist og þeir ákváðu að banka upp á hjá Eiríki, sem er aðeins eldri og hafði eilítið meiri reynslu í tónlist, til þess að athuga hvort hann væri til í að taka slaginn með þeim. Og það sama gilti um Rúnar. Það varð úr og fljótlega lá leiðin í Músíktilraunir. Annað sætið varð niðurstaðan og að launum fékk hljómsveitin stúdíótíma hjá Stúdíó Stemmu í Reykjavík (hjá Didda fiðlu). Þeir tímar eru enn ónýttir og verða varla nýttir úr þessu því Stúdíó Stemma starfar ekki lengur. Haukur segir að hljómsveitinni hafi af einhverjum verið líkt við Jethro Tull, sem hann segir að þeir félagarnir hafi ekki þekkt mikið til en þó vitað að væru alvöru listamenn! Haukur segir að á sínum stutta starfsferli hafi Drykkir innbyrðis ekki verið iðnir við kolann í tónleikahaldi, þeir félagarnir hafi lagt meiri áherslu á að æfa sig.

„Árið 1990 eignaðist ég fyrstu tölvuna sem ég gat tengt við hljómborð og vann í henni á forritið Cubase. Allar götur síðan, í meira en þrjátíu ár, hef ég verið að leika mér í þessu. Þá sem ég og tek upp hin ýmsu stef sem ég hef safnað saman í gegnum tíðina og því er óhætt að segja að eftir öll þessi ár sé nóg til. Eins og skáldin sem yrkja fyrir skúffuna sem ég stef og geymi inn á tölvunni. Ég er ekki í þörf fyrir að koma mér á framfæri með þetta, fyrst og fremst er það mér ákveðin afslöppun eða núvitund að fara að hljómborðinu og búa eitthvað til. Þetta er eins og að fara inn í einhvern heim og koma síðan út úr honum aftur endurnærður. Ég hef fundið þegar ég tek mér smá pásu frá þessu að ég þarf á þessu að halda til þess að slaka á og kúpla mig frá amstri dagsins. Í gegnum tíðina hef ég unnið með allskyns tæki og tól og mismunandi forrit og líklega á ég á bilinu 20 til 30 hljómborð. Mörg þeirra eru gamlir synthesizerar sem ég hef gert upp. Nálgun mín í þessu er því aðeins önnur en margra í tónlist, líklega má segja að ég sé meiri tæknimaður en tónlistarmaður,“ segir Haukur.

Það sem kveikti í þeim félögum í Drykkjum innbyrðis að koma saman aftur eftir fjögurra áratuga pásu voru tónleikar með djassskotinni tónlist sem Ingvi trommari hélt með nokkrum félögum sínum á Kaffi Lyst. Á tónleikana fóru Haukur og Viðar og að þeim loknum tóku menn tal saman og síðan fór boltinn að rúlla. Eitt leiddi að öðru og áður en menn vissu af var tekið það skref að taka upp ellefu laga plötu. Um upptökurnar sá Haukur Pálmason, vinur þeirra félaga í Drykkjum innbyrðis frá fyrri tíð. Raunar var Haukur með þeim í för forðum daga þegar keppt var í Músíktilraunum. Í ljósi þess að Haukur er einn af færustu upptökumönnum á svæðinu var hann sjálfkjörinn í upptökustjórn og síðan lögðu lóð á vogarskálarnar aðrir Akureyringar sem þeir þekktu vel, Pétur Hallgrímsson, sem lengi hefur spilað með Hvanndalsbræðrum, gerði teikningu á plötuhulstrið og Karl Örvarsson hannaði það. Sem sagt, hreinræktuð akureyrsk framleiðsla.

Flest lögin á plötunni eru að stofni til tæplega fjörutíu ára gömul en þó er þar að finna eitt nýtt lag, sem er í sama anda og eldri lögin.

„Fyrst og fremst var óskaplega gaman að endurnýja kynnin og ákveða að kýla á þetta með vinum sínum,“ segir Haukur.