Fara í efni

Grunndeildarnemar fá vinnugalla að gjöf

Nokkrir af þeim 48 nemendum í grunndeild málmiðnaðar sem fengu í gær afhenta vinnugalla sína.
Nokkrir af þeim 48 nemendum í grunndeild málmiðnaðar sem fengu í gær afhenta vinnugalla sína.

Það er orðin ánægjuleg hefð að nemendur í grunndeild málmiðnaðar í VMA fái að gjöf vinnugalla sem sannarlega nýtast þeim vel í verklegri kennslu í skólanum. Þetta ár var engin undantekning í þeim efnum og sem fyrr standa að gjöfinni fagfélögin Félag iðn- og tæknigreina (FIT), Félag málmiðnaðarmanna á Akureyri (FMA) og Félag vélstjóra og málmtæknimanna (VM).

Í grunndeild málmiðnaðar hefja núna á haustdögum 48 nemendur nám sem er svipaður fjöldi og undanfarin ár. Nemendur fengu vinnugalla sína afhenta í gær.

Ómetanlegt er fyrir skólann og nemendur hans að finna þann hlýhug og stuðning sem slík rausnarleg gjöf sýnir. Fyrir hana vill Verkmenntaskólinn þakka fagfélögunum af heilum hug.