Zontaklúbburinn Þórunn hyrna styrkir nemendasjóð VMA
Zontaklúbbur Þórunnar hyrnu hefur ákveðið að styrkja nemendasjóð VMA um 500 þúsund kr. og skal þeirri fjárupphæð varið til að styrkja efnaminni stúlkur/konur til kaupa á námsgögnum á skólaárinu 2026/2027.
Þetta er þriðja árið sem Zontaklúbburinn Þórunn hyrna styrkir nemendasjóð VMA. Fyrri ár hefur styrkupphæðunum verið varið til kaupa á tölvum fyrir efnaminni stúlkur/konur. Á komandi skólaári verður, sem fyrr segir, fjármununum varið til kaupa á námsgögnum.
Zontaklúbburinn Þórunn hyrna er hluti af alþjóðahreyfingu Zontakvenna. Tilgangurinn með starfi Zonta er að styðja við konur og stúlkur og vinna að jafnrétti. Þórunn hyrna kemur að slíkum verkefnum hér á landi, m.a. þessu verkefni í VMA, og alþjóðlegum verkefnum.
Verkmenntaskólinn á Akureyri þakkar Zontakonum fyrir einstakan hlýhug og mikilvægan stuðning við nemendur í VMA.