Áskorun á uppstigningardag
Nemendur og kennarar á annars vegar vélstjórnarbraut og hins vegar bifvélavirkjun í VMA bregða á leik og gera sér glaðan dag á athafnasvæði Bílaklúbbs Akureyrar við Hlíðarfjallsveg á uppstigningardag, nk. fimmtudag, 14. maí, kl. 13. Allir eru velkomnir að fylgjast með og taka þátt í gleðinni.
Allt kom þetta til í framhaldi af því að bifvélavirkjanemar skoruðu vélstjórnarnema á hólm og vildu fá úr því skorið hverjir ættu öflugustu bílana. Vélstjórnarbrautin gat auðvitað ekki annað en tekið áskoruninni og því munu menn beggja vegna víglínunnar mæta til leiks fullir sjálfstrausts.
Rétt er að undirstrika að ekki er um eiginlega spyrnukeppni að ræða, fyrst og fremst er gleðin og ánægjan við völd og viðburðurinn lýtur allt öðrum lögmálum en formleg spyrnukeppni. Allt utanumhald verður þó í öruggum höndum enda er Sævar Páll Stefánsson, einn af kennurunum á vélstjórn, formaður spyrnudeildar Bílaklúbbsins.