Hæstánægður með tækninám í HA
„Ég vil hvetja nemendur sem eru að ljúka námi frá VMA til að gefa gaum tækninámi sem er í boði í Háskólanum á Akureyri. Ég lauk námi í rafeindavirkjun frá VMA um jólin 2023 og um haustið 2024 fór ég í iðnaðar- og orkutæknifræði, sem HA býður upp á í samstarfi við Háskólann í Reykjavík, og er núna að ljúka öðru ári af þremur og hálfu. Þetta er fyrirtaks gott nám, að mínu mati, og ég tel að ég hafi verið vel undirbúinn fyrir það eftir að hafa lokið rafeindavirkjuninni í VMA,“ segir Steindór Sigurðsson.
„Þegar ég lauk rafeindavirkjuninni í VMA var ég ekki ráðinn í því hvað tæki við en ég hafði velt fyrir mér að fara suður í hátækniverkfræði í HR. En það sem breytti þeim áformum var að Ólafur Jónsson verkefnastjóri í iðnaðar- og orkutæknifræði í HA kom í heimsókn í VMA og kynnti okkur nemendum í rafeindavirkjun námið. Mér leist strax vel á það, breytti um kúrs og ákvað að sækja um í HA. Mér fannst ekki síst áhugavert og heillandi að geta lokið tæknifræðinámi á þremur og hálfu ári og horfa síðan til þess að fara í framhaldinu í sérhæfingu í meistaranámií verkfræði. Ég komst inn í námið og hóf það haustið 2024.
Ef ég ætti að skilgreina muninn á þessu námi og verkfræði mætti vísa til enskunnar, þetta nám er kallað practical engineering en hrein verkfræði er engineering. Eins og heiti námsins gefur til kynna er áherslan á iðnað og orkumál og til dæmis hef ég og annar nemandi verið að vinna að undanförnu að verkefni þar sem áherslan er á sólarsellur og grænar orkulausnir.
Þegar ég horfi til baka er ég afar þakklátur fyrir að hafa farið í rafeindavirkjun sem undirbúning fyrir þetta nám í stað þess að fara í hreint bóknám. Ýmislegt í náminu í HA kannaðist ég við sem tengist rafmagni og eitt og annað verklegt til viðbótar. En auðvitað er mikið bóklegt líka og þar sem ég tók ekki viðbótarnám til stúdentsprófs í VMA þurfti ég að bæta við mig heilmiklu í bæði stærðfræði og eðlisfræði áður en ég hóf námið í HA haustið 2024. Ég komst raunar inn í HA með þeim fyrirvara að ég myndi áður ljúka við þrjá áfanga í stærðfræði á þriðja þrepi og tvo áfanga á öðru þrepi í eðlisfræði og það gerði ég í fjarnámi við Verslunarskólann sumarið 2024. Það sumar var sem sagt undirlagt í lærdóm og ég neita því ekki að þetta var stórt og mikið verkefni. Eftir á að hyggja hefði ég verið betur settur að hafa lokið stúdentsprófi líka í VMA. En þetta gekk allt saman vel og ég fór á fullu í námið haustið 2024 og núna er ég því rúmlega hálfnaður. Í náminu hef ég bætt heilmiklu við við í raungreinunum, tveimur eðlisfræðiáföngum og þremur stærðfræðiáföngum. Það er óhætt að segja að þetta sé krefjandi nám og ég segi stundum að ef væri auðvelt að fara í gegnum þetta væri það ekki þess virði. Ég er hæstánægður með námið og það er mikill og góður kostur að geta tekið þetta hér á Akureyri, í minni heimabyggð. Það sparar gríðarlega mikla fjármuni að þurfa ekki að sækja nám til Reykjavíkur,“ segir Steindór og bætir við að sex nemendur séu nú að ljúka öðru árinu í iðnaðar- og orkutæknifræðinni í HA.
En hvað með framhaldið eftir HA, hvert stefnir Steindór: „Ég horfi til þess að fara í meistaranám í einhverju sem tengist orku- eða iðnaðargeiranum. Það kemur í ljós síðar en það nám þarf ég að sækja suður eða út fyrir landsteinana. Það eru mjög góðir atvinnumöguleikar fyrir þá sem fara þessa leið í námi og raunar hef ég nú þegar fengið innsýn í orkugeirann með sumarvinnu sl. sumar hjá Norðurorku og þar verð ég einnig að vinna í sumar. Önnur fyrirtæki sem sækjast eftir tæknimenntuðu fólki eru t.d. RARIK, verkfræðistofur, Slippurinn, gagnaversfyrirtækin og mörg fleiri. Atvinnumöguleikarnir eru miklir,“ segir Steindór.
Þess má geta að í síðustu viku kom Steindór og verkefnastjórarnir í iðnaðar- og orkutæknifræðinni í HA, Ólafur Jónsson og Þorbjörg Ída Ívarsdóttir, í VMA og kynntu námið fyrir nemendum á rafiðnbraut skólans.