Ný stjórn Þórdunu og LVMA
Fimmtudaginn 16. apríl lauk kosningu í stjórn Þórdunu og Leikfélags VMA og voru niðurstöður birtar á aðalfundi Þórdunu sem fór fram sama dag.
Stjórn Þórdunu
- Formaður: Birkir Orri Jónsson
- Varaformaður: Júlía Sumarrós Stefánsdóttir
- Ritari: Nanna María Ragnarsdóttir
- Gjaldkeri: Hlynur Blær Tryggvason
- Skemmtanastjóri: Jóhann Lars Palleq Sigvarðsson
- Kynningarfulltrúi: Sigríður María Þórðardóttir
- Formaður tækniráðs: Kristófer Máni Sigurðsson
- Formaður hagsmunaráðs: Arnór Breki Guðmundsson
Bæði Birkir og Hlynur hafa áður setið í stjórn Þórdunu. Birkir er að hefja sitt fjórða ár í stjórn. Síðustu tvö skólaár hefur hann gegnt starfi skemmtanastjóra, en á sínu fyrsta ári í VMA var hann eignarstjóri, starf sem kallast nú formaður tækniráðs. Hlynur er að hefja sitt þriðja ár, en hann var varaformaður síðasta skólaár og nýnemafulltrúi árið þar á undan.
Stjórn Leikfélags VMA
- Formaður: Ásta Ólöf Jónsdóttir
- Varaformaður: Helgi Fannar Steinþórsson
- Markaðsstjóri: Emelía Bjarnveig Skúladóttir
- Meðstjórnandi: Kveldólfur Snjóki
- Gjaldkeri: Ágústa Björg Pálsdóttir
Ásta Ólöf, Helgi Fannar og Emelía Bjarnveig voru öll í stjórn Leikfélags VMA á síðasta ári og halda áfram störfum.

Stjórnendur VMA vilja þakka fráfarandi stjórn Þórdunu og LVMA fyrir vel unnin störf á liðnu ári. Það má með sanni segja að hópurinn hafi sýnt og sannað hversu öflug þau eru og lagt mikilvægt af mörkum til félagslífs skólans.