Fara í efni

Elín Berglind með þriðjudagsfyrirlestur

Elín Berglind Skúladóttir, sjónlistakennari og listakona.
Elín Berglind Skúladóttir, sjónlistakennari og listakona.
Í dag, þriðjudaginn 28. október, kl. 16.15 heldur Elín Berglind Skúladóttir, sjónlistakennari og listakona á Akureyri, þriðjudagsfyrirlestur í Listasafninu á Akureyri undir yfirskriftinni Að ná tökum á tækni. Þar mun hún fjalla um leirlífið, námskeiðin, myndlistarkennsluna, Þúfu46 og framhaldið. Aðgangur er ókeypis.
 
Elín Berglind útskrifaðist með B.Ed í grunnskólakennslu frá Háskólanum á Akureyri með kjörsvið í myndmennt frá Háskóla Íslands. Í kjölfarið tók hún M.Ed. í kennslu list- og verkgreina frá HÍ. Hún hefur kennt myndlista- og verkgreinar í grunnskóla síðan 2009 og undanfarin ár lagt sérstaka áherslu á námsefnisgerð og að blanda saman hefðbundnum verkefnum og tækni. Einnig hefur hún unnið að því að bæta einhverju nýju við þessi hefðbundnu verkefni nemenda og gera reynsluna dýpri og áhugaverðari. Í nálgun sinni leggur Elín Berglind áherslu á faglega kennslu, fræðslu í listasögu og samstarf við Listasafnið á Akureyri, listamenn og listasamfélagið. Leirmótun er ávallt hluti af námi barna í kennslu hennar og gera allir þeir árgangar sem hún kennir a.m.k. eitt leirverkefni með áherslu á mismunandi tækni við leirmótun og persónulega sköpun.
 
Frá 2021 hefur Elín Berglind haldið úti vefsíðunni listkennsla.com þar sem nálgast má verkefni fyrir kennsluna. Hún hefur jafnframt fylgt eftir ferli sínu í leirnum síðan 2023 á samfélagsmiðlum og leggur þar áherslu á tilraunir, uppgötvanir, framfarir og fjölbreyttar aðferðir. Hún heldur jafnframt námskeið í leirmótun í Samlaginu – sköpunarverkstæði og á vinnustofu sinni í Þúfu 46.
 
Þriðjudagsfyrirlestrarnir eru samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, VMA, Myndlistarfélagsins og Gilfélagsins.