Einbeitt í bingói
Það er auðvitað bráðnauðsynlegt að koma annað slagið saman utan hinna daglegu kennslustunda til þess að efla félagsandann og ræða um eitthvað annað en fræðin og fyrirliggjandi verkefni. Undanfarin ár hefur Sævar Páll Stefánsson brautarstjóri vélstjórnargreina haft frumkvæði að því að efna til bingós fyrir nemendur sína og á því var engin undantekning í ár. Viðburðurinn var í samstarfi við nemendafélagið Þórdunu sem leysti þátttakendur út með pizzaveislu.
Í síðustu viku mættu um fjörutíu nemendur í vélstjórnar- og málgreinum saman í Gryfjunni og skemmtu sér hið besta í bingóinu. Sævar Páll hafði safnað fullt af veglegum bingóvinningum frá Ferro Zink, AB-varahlutum, Straumrás, Veldix, Motul, Würth, Kletti, Sindra og Stillingu. Þessum fyrirtækjum er þakkaður stuðningurinn.
Á milli atriða í bingóinu var efnt til brandarakeppni og þá reyndi heldur betur á keppendur!
Bingóið tókst hið besta og hefur unnið sér fastan sess.