Draumminning um Örn
Diljá Ísfold Sigurpálsdóttir hafði lokið fyrsta árinu til stúdentsprófs í Fjölbrautaskóla Suðurnesja í Keflavík þegar hún flutti til Akureyrar og hóf nám á listnáms- og hönnunarbraut VMA haustið 2024. Stefnan er tekin á stúdentspróf í lok haustannar 2026.
„Ég fæddist í Keflavík en bjó um tíma í Sandgerði og Grindavík. Ég var í grunnskóla á Ásbrú og síðan í Holtaskóla í Keflavík þaðan sem ég útskrifaðist úr grunnskóla vorið 2023. Þá fór ég í FS - Fjölbrautaskóla Suðurnesja og var þar í tvær annir. Síðan kom ég í VMA. Ég kann mjög vel við námið hér, við fáum að prófa svo margt og það er einstaklega gott samband okkar nemendanna við kennarana.
Ég held að það hafi aldrei annað komið til greina en að fara á listnámsbraut. Frá því ég var lítil hef ég mikið verið að skissa og teikna, rétt eins og mamma, og mig langaði til þess að læra þetta nánar. Mér finnst gaman að prófa mig áfram með ýmislegt en auðveldast finnst mér að túlka eitthvað frá hjartanu með teikniblýantinum,“ segir Diljá.
Þessa dagana er til sýnis akrílmynd eftir Diljá á vegg gegnt austurinngangi skólans sem hún málaði í málverksáfanga hjá Björgu Eiríksdóttur á haustönn 2025. Hér dregur Diljá fram draumkennda mynd af hesti sem hún kallar Ertu þarna greyið, já. Afi og amma hafa lengi búið á Nautabúi í Skagafirði og þar hef ég oft verið á undanförnum árum og þaðan á ég sterkar minningar. Sumarið 2023 var stóðhesturinn Örn, uppáhaldshesturinn hans afa, felldur. Skömmu síðar var ég hjá þeim og eina nóttina dreymdi mig hestinn, ég sá hann fyrir mér standa fyrir utan gluggann. Þessi akrílmynd er draumminning mín um hestinn Örn,“ segir Diljá.
En hvað tekur við hjá Dilju að náminu í VMA loknu? Allt er opið í þeim efnum, kannski að fara í einhvers konar hönnun, kannski að verða bóndi, segir Dilja og brosir. En vinna komandi sumars er klár; afgreiðslustörf hjá Gæludýr.is á Akureyri. Þar var Dilja líka sl. sumar og hefur tekið þar vaktir í vetur með skólanum.