Fara í efni

Dimmision í dag

Vígreifir nemendur núna í morgunsárið. Mynd: PGuðj
Vígreifir nemendur núna í morgunsárið. Mynd: PGuðj

Í dag er dimmision í VMA og í tilefni dagsins klæða útskriftarnemendur sig upp og gera sér glaðan dag. Að vonum er dagurinn tekinn snemma því áður en kemur til hátíðarhalda innan veggja skólans heimsækja nemendur kennara og kveðja þá með formlegum hætti.

Um klukkan 09:00 hefst  skemmtidagskrá í Gryfjunni þar sem útskriftarnemendur og kennarar keppa á hinum árlegum Gryfjuleikum. Ætla má að vegna þeirra komi löngufrímínúturnar til með að lengjast í dag. 

Til upprifjunar er hér umfjöllun um dimmision í VMA sl. vor og hér má sjá skemmtilegar myndir frá dimmison vorið 2009