Gleðin við völd á dimisjón í dag
30.04.2026
Í dag var dimisjón í VMA, brautskráningarnemar áttu sviðið í dag því senn líður að lokum þeirra í skólanum, nú eru einungis tvær vikur eftir af kennslu og rétt tæplega mánuður í brautskráningu. Í tilefni dagsins brugðu brautskráningarnemar á leik í Gryfjunni og reyndu fyrir sér í ýmsum þrautum, m.a. reiptogi. Þar höfðu vélstjórnarnemar sigur og þeir skoruðu að sjálfsögðu á kennara og aftur höfðu þeir sigur. Formlegri dagskrá dagsins luku brautskráningarnemar á kaffistofu starfsfólks í A-álmu þar sem boðið var upp á skúffuköku að venju í tilefni dagsins.
Latneska hugtakið dimission merkir brottför, útskrift eða að sleppa.