Fara í efni

Dagskrá brautskráningar - streymt verður frá athöfninni í Hofi

Starfsfólk VMA 22. maí 2025 - mynd Hilmar Friðjónsson
Starfsfólk VMA 22. maí 2025 - mynd Hilmar Friðjónsson

Brautskráning frá VMA fer fram í Hofi, laugardaginn 24. maí kl. 10.

Gestir þurfa að vera með aðgöngumiða til að fá sæti í Hamraborg en jafnframt verður athöfninni streymt yfir í Hamra þar sem hægt verður að sitja og horfa á athöfnina á stórum skjá og í góðum hljómgæðum. ´Hér er hlekkur á streymið.

Dagskrá. 

  • Setning og ræða skólameistara
  • Tónlistaratriði: Ólöf Alda brautskráningarnemandi af starfsbraut syngur
  • Brautskráning verður í þessari röð:
    • Nemendur í iðnnámi, sviðsstjóri Unnur Ása
    • Nemendur af stúdentsprófsbrautum, fjarnámi, sjúkraliðanámi og félagsliðanámi, sviðsstjóri Ómar
    • Nemendur af starfsbraut og sérnámsbraut, sviðsstjóri Bryndís Inda
  • Tónlistaratriði: Birna Karen nýstúdent af listnáms- og hönnunarbraut
  • Ræða fyrir hönd brautskráningarnema: Hafey Hvítfeld nýstúdent af listnáms- og hönnunarbraut
  • Kveðja skólameistara til brautskráningarnema og hátíðarslit

Að athöfn lokinni ganga brautskráningarnemar úr sal og gestir á eftir. Myndataka fer fram á sviðinu í Hofi fljótlega eftir athöfn og eru nemendur beðnir um að koma til baka inn í Hamraborg 10-15 mínútum eftir athöfnina. 

Gera má ráð fyrir því að athöfnin og myndatakan taki um tvær klukkustundir. 

Skólameistari