Fara í efni

Dagskrá íþróttaviku Evrópu í VMA

Ólafur H. Björnsson íþróttakennari ýtti Íþróttaviku Evrópu úr vör í löngu frímínútunum í Gryfjunni í…
Ólafur H. Björnsson íþróttakennari ýtti Íþróttaviku Evrópu úr vör í löngu frímínútunum í Gryfjunni í dag.

Góð vísa er aldrei of oft kveðin, segir máltækið, og það á sannarlega við um líkamsrækt og almenna hreyfingu, hver svo sem hún er. Í dag hófst svokölluð Íþróttavika Evrópu (Europian Week of Sport) og stendur í viku eða til 30. september nk.

Þessi íþróttavika hefur það að markmiði að kynna íþróttir og almenna hreyfingu og sporna gegn auknu hreyfingarleysi fólks. Vikan er ætluð öllum, óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi og er áhersla lögð á að virkja grasrótina og hvetja fólk til að hreyfa sig meira í daglegu lífi. Íþrótta- og ólympíusamband Íslands hefur hlotið styrk úr Erasmus+ styrkjakerfi ESB til að styðja við framkvæmd íþróttavikunnar hér á landi.

Í VMA verða sem fyrr ýmsar uppákomur í tilefni af íþróttavikunni. Allir eru hvattir, bæði starfsfólk og nemendur, til þess að ganga eða hjóla í skólann.

Gegn framvísun nemendaskírteina eða aðgangi að Innu fá nemendur í íþróttaviku:

Frían vikupassa í World Class
Tvo prufutíma í Norður líkamsrækt
50% afslátt í Skógarböðin
Aðgang og skó í Klifur 600 fyrir 1500 kr.

Ólafur H. Björnsson íþróttakennari setti íþróttavikuna í Gryfjunni í morgun og eftir hádegi í dag verður opinn tími í íþróttasal VMA.

Á morgun, fimmtudaginn 24. september, verður keppni í löngu frímínútunum, kl. 9:40 til 10:00 í Gryfjunni í reiptogi í umsjón Þórdunu nemendafélags. Strax í kjölfarið, kl. 10:00-11:10, verður opinn tími í íþróttasal VMA. Klukkan 16:00 er öllum nemendum og starfsfólki boðið í göngutúr með Arnsteini og Björk og verður gengið frá VMA og í Skógarböðin, sem veita 50% afslátt af aðgangseyri.

Föstudaginn 25. september efnir Þórduna til limbókeppni í Gryfjunni í löngu frímínútunum, kl. 9:40-10:00.

Mánudaginn 28. september verður opinn tími í íþróttasal VMA kl. 8:30-9:40. Í löngu frímínútunum þann dag verður síðan róðrarkeppni á sviðinu í Gryfjunni. Í hádeginu á mánudag, 28. sept,, verður síðan bekkpressumót í Gryfjunni. Þórduna tekur við skráningum.

Þriðjudaginn 29. september verður armbeygjukeppni í Gryfjunni í löngu frímínútunum, kl. 9:40-10:00 og kl. 16-17 verður efnt til rafhjólatúrs (og fyrir órafmögnuð hjól auðvitað líka).