Fara í efni

Connect-R verkefnið í Evrópuþinginu í Strassborgh


Hópur átta nemenda og tveggja starfsmanna VMA fór til Strassborgar í Frakklandi vikuna 11. – 15. maí 2026.

Erindið var að taka þátt í umræðu um tillögur ungs fólks um aðgerðir og reglur til að auka líkurnar á að ungt fólk vilji og geti haldið áfram að búa eða sett sig niður í dreifbýli. Flestum er ljóst að langmest af matvælum verður til í dreifbýli og það þarf að passa að hægt sé að búa þar við svipuð skilyrði og í þéttbýli hvað varðar aðstæður og þjónustu. 

Connect-R er Erasmus+ verkefni sem tvinnar saman sjónarhorn á dreifbýli, starfsmenntun og aðra menntun í dreifbýli, hvernig umræða um framtíð dreifðra byggða er skipulögð og ekki síst hvernig raddir ungs fólks koma inn í umræðu um og útfærslu á aðgerðum vegna dreifðra byggða.

https://europe.mfr.fr/en/category/projets/connect-r/

VMA tekur þátt ásamt aðilum frá Rúmeníu, Eistlandi og frá Frakklandi. MFR í Frakklandi skipuleggur og stjórnar verkefninu og þaðan komu líka langflestir þátttakendurnir, af um 200 þátttakendum voru um 150 þaðan frá fjölmörgum stöðum í Frakklandi.

VMA hópurinn hittist í nokkur skipti á skólaárinu og undirbjó tillögur til yfirvalda um það hvernig væri hægt að bæta lífsskilyrði fólks á dreifbýlum svæðum. Akureyri telst í raun og veru til dreifbýls svæðis þótt við höfum að sjálfsögu miklu meiri þjónustu á Akureyri en í byggðunum í kring.

Þær tillögur sem urðu svo ofaná og voru sendar inn í gögn verkefnisins voru þrjár frá VMA.

Varðandi húsnæði á skynsamlegu verði og þar var tillagan um að takmarka möguleika fyrirtækja og einstaklinga á að safna íbúðum til að leigja með hagnaði.

Um að nýta fjarþjónustu aðferðir mun meira í til dæmis heilbrigðisþjónustu, fyrir lyf og ýmislegt annað sem nú þarf að fara á staðinn til að ná í. Í greinargerð var bent á að það þarf fleira að vera í gegnum netið heldur en fjarnám og verslun.

Þriðja tillagan var um að mikilvægt sé að efla þá hugsun að fjölbreytni sé góð allsstaðar, að benda á að ef fólk á ákveðnum svæðum er mjög mikið eins, með sama húðlit, sama bakgrunn í menningu, einfalda mynd af kynferði og svo framvegis þá er líklegt að fólk sem ekki fellur í inn í einfalda rammann hrekist burtu og þá fækki þeim hugmyndum sem fæðast á svæðinu.

VMA hópurinn fór til Frakklands mánudag 11. maí. Dagana 12. og 13. maí var unnið í fundarherbergjum í húsnæði Evrópuþingsins í Strassborg og að lokum voru 9 tillögur samþykktar af þeim 32 sem höfðu verið lagðar fram af öllum aðilum verkefnisins.

Ferlið var þannig að allar tillögurnar voru kynntar og í raun verið að rökstyðja að þær væru mikilvægar, svo greiddu ungmennin atkvæði um tillögurnar og að lokum voru níu eftir. Þar á meðal tillaga VMA um húsnæði nánast óbreytt og tillaga um fjölbreytni sem er mjög í áttina að tillögu VMA.

Aðrar tillögur sem voru samþykktar fjalla um samgöngur í dreifbýli, hvernig ungt fólk kemst inn í að stunda landbúnað og um umhverfismál.

Fullorðið fólk sem fylgdi hópunum tók ekki þátt í þessu, það voru ungmennin sem kynntu og fjölluðu um tillögurnar og greiddu svo atkvæði. Allt þetta fór fram í stórum fundarsal sem tekur líklega 300 – 400 manns með hljóðnemum, atkvæðakerfi og fleiru fyrir hvern mann.

Á meðan unga fólkið gerði þetta var eldra fólkið á námskeiðum sem fjölluðu mest um fjölbreytni og hvernig er æskilegt að koma til móts við sífellt meiri fjölbreytileika í þörfum t.d. nemenda á framhaldsskólastigi.

Þarna var sem sagt verið að samþykkja tillögur þessa verkefnis sem fara til þeirra stofnana ES sem fjalla um málefni dreifbýlis og ungt fólk en að sjálfsögðu fyrst og fremst um framtíð í dreifbýli. Við lok fundarins var pallborð þar sem einn þingmaður á þingi Evrópusambandsins var staddur, þar voru líka fulltrúa deilda úr framkvæmdastjórn ES og ráðuneyta Frakklands sem fjalla um málefni ungs fólks og dreifbýli.

Það má fullyrða að þótt að Ísland sé ekki í ES hafi tillögurnar úr VMA fengið hljómgrunn og það var tekið eftir því hversu öflugur hópurinn var frá VMA.

Skoðanir innan hópsins til dæmis um aðild að ES eru örugglega mjög skiptar en það var ekki umræðuefnið heldur hvernig er hægt að hafa áhrif á viðmið og regluverk á landsvísu og Evrópuvísu. Eins og venjulega stóðu nemendur VMA sig mjög vel.

MFR stefnir á að gera þetta að árlegum viðburði, að minnst kosti næstu tvö ár og hver veit nema VMA muni eiga kost á að vera með. Við höfum starfað í allskyns verkefnum með MFR sem rekur um það bil 400 litla skóla í dreifbýli um allt Frakkland og í fleiri löndum. MFR skólarnir nota aðferð sem kallast alternance eða skólanám og þjálfun á vinnustað til skiptis, oft ein og ein vika eða fáar vikur í skóla og á vinnustað. Námið í skólanum og þjálfunin á vinnustað er samþætt þannig að nemendur læra atriði í skólanum og fá svo þjálfun í þeim á vinnustað.

https://www.mfr.fr/

MFR vill hafa okkur í VMA með af því að við höfum staðið okkur að mörgu leyti vel í því að veita starfsmenntun og höfum unnið að því að skapa rými fyrir fjölbreyttan nemendahóp. Ekki síst vilja þau hafa okkur með vegna þess að Akureyri og Norðausturland er dæmi um dreifbýlt, afskekkt svæði sem virðist halda sínu í fólksfjölda og vonandi tekst okkur að skapa samfélag sem flest ungt fólk vill búa í.