Brautskráningin 24. maí í Hofi - VMA brautskráir 186 nemendur
Verkmenntaskólinn á Akureyri brautskráir á morgun 185 nemendur (219 skírteini því margir nemendur útskrifast með fleiri en eitt skírteini) sem er næst fjölmennasta brautskráning í ríflega 40 ára sögu skólans. Í desember brautskráði skólinn 116 nemendur og því er heildarfjöldi brautskráningarnema frá VMA á þessu skólaári 302 og hafa þeir aldrei verið fleiri á einu skólaári í sögu skólans.
Brautskráningin hefst kl. 10:00 í Menningarhúsinu Hofi.
Skipting brautskráningarnema á brautir er sem hér segir:
Félagsliðar 4 (2 ljúka viðbótarnámi til stúdentsprófs)
Félags- og hugvísindabraut 6
Fjölgreinabraut 18
Íþrótta- og lýðheilsubraut 7
Kjötiðn 5
Listnáms- og hönnunarbraut – fata- og textíllína 1
Listnáms- og hönnunarbraut – myndlistarlína 10
Matartækni 9
Matreiðsla 9
Múrsmíði 7
Náttúruvísindabraut 5
Sérnámsbraut 5
Starfsbraut 7
Viðskipta- og hagfræðibraut 6
Sjúkraliðabraut 4
Stálsmíði 6
Meistaranám 22
Húsasmíði 21
Rafvirkjun 18 (1 lýkur viðbótarnámi til stúdentsprófs)
Vélstjórn 13 (allir ljúka stúdentsprófi – 1 útskrifast einnig með rafvirkjun fyrir vélvirkja)
Vélvirkjun 1
Viðbótarnám til stúdentsprófs 2