Brautskráning í Hofi 29. maí
28.05.2026
Brautskráning VMA verður í Menningarhúsinu Hofi föstudaginn 29. maí kl. 16:00.
Brautskráðir verða 132 nemendur af tuttugu námsbrautum og auk þess ljúka 6 nemendur viðbótarnámi til stúdentspróf að loknu starfsnámi og 24 ljúka meistaranámi í hinum ýmsu iðngreinum. Heildarfjöldi brautskráðra að þessu sinni er því 162 og heildarfjöldi brautskráningarskírteina er 180 því 18 nemendur á verknámsbrautum útskrifast einnig sem stúdentar (13 vélstjórar, 1 sjúkraliði og 4 húsasmiðir).
Í desember sl. voru 73 nemendur brautskráðir frá VMA og því útskrifar skólinn 235 nemendur skólaárið 2025-2026.