Fara í efni

Borðspilin heilla

Gleðin við völd í borðspilstíma á starfsbraut. Hafdís Björg bregður á leik með nemendum. Mynd: María…
Gleðin við völd í borðspilstíma á starfsbraut. Hafdís Björg bregður á leik með nemendum. Mynd: María Sigurðardóttir.

„Það hefur verið sérlega ánægjulegt að finna hversu sterkt sum borðspil höfða til nemenda og hvernig þau geta aukið á samskipti þeirra,“ segir Hafdís Björk Bjarnadóttir kennari en núna á vorönn hefur hún og Þóra Ýr Sveinsdóttir kennari verið með áfanga með nemendum á starfsbraut sem heitir einfaldlega Borðspil.

Áfanginn gengur út á að kynna fyrir nemendum hin ýmsu borðspil enda búa mörg þeirra yfir fróðleik af ýmsum toga sem nemendur geta sett í samhengi við eitt og annað í sínu daglegu lífi. Hluti af áfanganum felst í því að nemendur kynna samnemendum sínum fyrir sínum uppáhalds borðspilum. Eitt þeirra, Varúlfur, hefur heldur betur slegið í gegn í vetur.

Símanotkun er ekki leyfð í þessum tímum, markmiðið er að auka samskipti nemenda án símanna, að þeir tileinki sér samskiptareglur spilanna og vinni saman. „Okkur hefur fundist það takast frábærlega vel, nemendur upplifa sig sem heild og hafa greinilega mikla ánægju af þessu. Þessir tímar hafa verið í tvöföldu tímapari en tíminn hefur flogið áfram og nemendur hafa oft gleymt frímínútunum. Það segir okkur að þetta hafi virkað mjög vel og raunar betur en við þorðum að vona. Oft og tíðum þurfa hlutirnir ekki að vera svo flóknir til þess að kveikja áhuga nemenda,“ segir Hafdís Björg.