Fara í efni

Bleiki dagurinn í VMA

Starfsfólk og nemendur VMA sýna konum sem hafa greinst með krabbamein samstöðu með því að klæðast bl…
Starfsfólk og nemendur VMA sýna konum sem hafa greinst með krabbamein samstöðu með því að klæðast bleiku í dag.

Bleiki dagurinn er í dag, miðvikudaginn 21. október 2026. Hann er hluti af árlegu átaki Krabbameinsfélags Íslands, Bleiku slaufunni, og með því vill samfélagið sýna konum sem greinst hafa með krabbamein stuðning og samstöðu.

Á Bleika deginum er fólk hvatt til að klæðast bleiku og bera Bleiku slaufuna og er yfirskrift átaksins í ár Sjáðu þig. Í ár var Bleika slaufan hönnuð af listafólkinu Tönju Levý og Jökli Jónssyni.
 
Nánar um Bleika daginn á vef Krabbameinsfélags Íslands.