Fara í efni

Besta spænskuveggspjaldið

Anna Björg Elmarsdóttir, nemandi á fjölgreinabraut VMA. Spænskuveggspjaldið hennar var valið það bes…
Anna Björg Elmarsdóttir, nemandi á fjölgreinabraut VMA. Spænskuveggspjaldið hennar var valið það besta í ár.

Í vetur hafa nemendur Auðar Ingu Ólafsdóttur kennara í lokaáfanga í spænsku í VMA (SPÆN1RS05)  búið til veggspjöld í tengslum við 14. heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna - líf í vatni. Hægt var að senda myndband og/eða veggspjald til að keppa um verðlaun í samkeppni spænskunema á framhaldsskólastigi fyrir besta veggspjaldið og/eða myndbandið. Ákveðið var að nemendur áfangans í VMA gerðu veggspjald og varð veggspjald Önnu Bjargar Elmarsdóttur fyrir valinu og keppti við veggspjöld frá nokkrum framhaldsskólum á suðvesturhorninu sem kenna spænsku.

Spænska sendiráðið í Noregi, með aðkomu félags spænskukennara á Íslandi, hafði umsjón með þessu verkefni og skipulagningu spænskuhátíðar 13. mars sl. þar sem verðlaun voru veitt í veggspjalda-/myndbandasamkeppninni. Í ljós kom að veggspjald Önnu Bjargar var valið það besta í keppninni. Að launum hlaut hún nokkurra daga spænskunámskeið í háskólabænum Alcalá de Henáres, skammt frá Madrid á Spáni. Til stendur að Anna Björg fari á námskeiðið í apríl nk.

Anna Björg segir að það hafi í fyrsta lagi komið sér á óvart að veggspjald hennar skyldi verða fyrir valinu þegar nemendur í áfanganum völdu þeirra framlag til þessarar keppni. Og ekki síður hafi það komið sér á óvart að veggspjaldið skyldi síðan sigra í keppninni á landsvísu. Hún segist hafa fylgst með spænskuhátíðinni, þegar niðurstaðan var tilkynnt, með Auði spænskukennara í beinu streymi.

En hver er Anna Björg Elmarsdóttir, á hún einhver tengsl við Spán? Nei, svo er ekki, Anna Björg er fædd og uppalin á Akureyri. Þegar hún var yngri segist hún alltaf hafa verið með það í huga að verða hjúkrunarfræðingur. Þegar síðan kom að framhaldsskólanum voru þau áform Önnu ekki eins ofarlega í huga og því fór hún á listnáms- og hönnunarbraut í VMA. Á öðru ári sá hún ekki fyrir sér að leggja listina fyrir sig og áhuginn á hjúkrunarfræðinni var endurvakinn. Því breytti hún um stefnu, skráði sig á fjölgreinabraut og hefur verið að púsla saman stúdentsprófi úr ýmsum áttum, ekki síst með áherslu á líffræði og lífeðlisfræði, til þess að undirbúa umsókn um hjúkrunarfræði sem Anna Björg stefnir á næsta haust, í kjölfar stúdentsprófs frá VMA í maí nk.
Ein af þeim námsgreinum sem Anna Björg hefur lagt stund á í VMA er spænska, áfanginn sem hún er núna í er þriðji og síðasti spænskuáfanginn sem VMA býður upp á. Anna segist hafa haft mikla ánægju af því að glíma við spænskuna og óneitanlega hafi veggspjaldasamkeppnin og úrslitin í henni verið skemmtilegt krydd í náminu.

Hér má sjá veggspjaldið hennar Önnu Bjargar.