Bensi 60 ára!
Eitt er víst í þessum heimi, þótt ekki sé unnt að ganga að mörgu öðru vísu, að fólk á afmæli einu sinni á ári. Afmælin eru eins og gengur misjafnlega stór, eða það finnst mörgum í það minnsta, en staðreyndin er samt sú að afmæli eru merkileg og þeim ber öllum að fagna.
Samkvæmt nýjustu tölum Hagstofunnar búa nú 396.500 manns á Íslandi. Ef við beitum meðaltalsútreikningi og deilum þessari íbúatölu á 365 daga ársins fáum við út að 1086 Íslendingar eigi afmæli að jafnaði á degi hverjum.
Eitt af afmælisbörnum dagsins í dag, miðvikudaginn 11.11.2026, stendur hjarta Verkmenntaskólans á Akureyri nálægt, sjálfur skólameistarinn Benedikt Barðason. Í dag eru liðin nákvæmlega 60 ár frá því að hann var borinn í þennan heim.
Á þessum tímamótum er Bensi fjarri heimahögunum, er að heiman eins og stundum er sagt. En það breytir því ekki að í tilefni dagsins eru honum sendar kærar afmæliskveðjur frá starfsfólki og nemendum VMA!