Benedikt Barðason hefur verið skipaður skólameistari VMA
Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, hefur skipað Benedikt Barðason í embætti skólameistara Verkmenntaskólans á Akureyri til fimm ára frá 1. ágúst næstkomandi.
Benedikt þekkir VMA mjög vel, var hér nemandi og hefur starfað við skólann í 25 ár sem kennari, áfangastjóri, aðstoðarskólameistari og settur skólameistari. Hann var einnig settur skólameistari í Framhaldsskólanum á Laugum síðastliðið ár. Benedikt er með meistaragráðu frá Háskóla Íslands í opinberri stjórnsýslu auk kennsluréttinda frá Kennaraháskóla Íslands. Hann lauk grunnnámi í efnatæknifræði við Háskólann í Álaborg og er með diplómu í iðnrekstrarfræði frá Háskólanum á Akureyri.
Sigríður Huld skólameistari óskar fyrir hönd starfsfólks og nemenda VMA Benedikt til hamingju með skipunina og farsældar í starfi. Áfram VMA!