B1 á evrópska tungumálarammanum er viðmið við inntöku nemenda af erlendum uppruna
Frá og með næsta skólaári þurfa nemendur af erlendum uppruna sem sækja um nám við Verkmenntaskólann á Akureyri og Menntaskólann á Akureyri að hafa lokið hæfnistigi B1 í íslensku samkvæmt evrópska tungumálarammanum, til að eiga möguleika á því að innritast á þá braut sem óskað er eftir. Nemendur sem ekki hafa náð því hæfnistigi geta sótt um nám á íslenskubrú í MA. Þessi ákvörðun hefur verið tilkynnt með bréfi, dags. 27. mars sl., til skólastjóra grunnskóla, námsráðgjafa, kennara íslensku sem annars tungumáls o.fl.
Evrópski tungumálaramminn sem hér er vísað til er evrópskt kerfi sem metur tungumálakunnáttu fólks og var upphaflega ávöxtur þróunarvinnu innan Evrópuráðsins. Þetta kerfi hefur verið notað í skólum og atvinnulífinu til þess að meta tungumálakunnáttu fólks; lestur, hlustun, talmál og ritun. Tungumálakunnáttan er metin frá A1 til C2 þar sem A1 tekur til þeirra sem eru byrjendur í tungumálanámi en sá sem býr yfir C2 færni skilur viðkomandi tungumál og getur tjáð sig á því í nær öllum aðstæðum. Hæfnistig B1, sem VMA og MA vísa til, tekur til þeirra nemenda sem hafa á valdi sínu venjuleg samskipti á íslensku og geta skrifað einfaldan texta á íslensku.
Vert er að rifja upp að íslenskubrú, námsbraut fyrir nemendur af erlendum uppruna þar sem megin áherslan er á íslenskunám og samfélagsfræðslu, var ýtt úr vör í VMA á vorönn 2024. Þá hafði skólinn lengi kennt nemendum af erlendum uppruna íslensku en í ljósi fjölgunar þeirra ár frá ári þótti rétt að marka námi þeirra ákveðinn og formlegan farveg með stofnun sérstakrar námsbrautar. Íslenskubrúin var áfram í boði í VMA skólaárið 2024-2025 en frá og með sl. hausti færðist hún til Menntaskólans á Akureyri og hefur verið starfrækt þar á þessu skólaári. Verkefnastjóri námsbrautarinnar þar, eins og í VMA, er Jóhanna Björk Sveinbjörnsdóttir.
Ákvörðun VMA og MA um að miða inntöku nemenda af erlendum uppruna við B1 hæfniviðmið evrópska tungumálarammans byggir á reynslu skólanna undanfarin ár. Í ljós hefur komið að hæfni í íslensku á A1 eða A2 – tveimur lægri stigum evrópska tungumálarammans – dugar nemendum ekki til þess að þeir nái þeim árangri sem krafist er á þeim brautum sem þeir stunda nám og það hefur oftar en ekki leitt til brottfalls þessara nemenda. Með öðrum orðum reynist framhaldsskólanám nemenda sem hafa færni í íslensku undir B1 hæfniviðmiði þeim ofviða. Þeir sækja þá í hjálpartæki eins og gervigreind og þýðingarvélar og áherslan verður ekki á að læra íslenskuna, heldur vilja þeir eiga samskipti við samnemendur og kennara á ensku.
Íslenskubrautin er og verður áfram til staðar í MA fyrir þá nemendur af erlendum uppruna sem hafa ekki náð B1 hæfniviðmiði í íslensku. Í framhaldi af því að nemendur ná B1 hæfniviðmiði geta þeir sótt um nám á hinum ýmsu brautum í VMA (skólinn innritar nemendur við bæði upphaf haust- og vorannar) og það sama á við um MA.