Fara í efni

Átta pör í starfsmannahópnum í VMA

Aftari röð frá vinstri: Jóhannes, Magni, Baldvin, Jóhann, Bragi, Ólafur, Ómar og Jóhannes. Fremri rö…
Aftari röð frá vinstri: Jóhannes, Magni, Baldvin, Jóhann, Bragi, Ólafur, Ómar og Jóhannes. Fremri röð frá vinstri: Sólveig, Harpa, Björk, Hanna, Þóra, Inda, Svava og Marína.

Starfsmannahópur VMA er einkar samhentur og traustur. Í gegnum tíðina hefur verið ótrúlega lítil starfsmannavelta í skólanum. Raunar er starfsmannahópurinn miklu meira en samhentur því ef glöggt er skoðað kemur í ljós að þar leynast átta pör. Þessir 16 starfsmenn eru því sem næst 12% af heildar starfsmannafjölda skólans:

Jóhannes Árnason, kennari raungreina
Sólveig Þóra Jónsdóttir, kennari textílbrautargreina

Jóhann H. Þorsteinsson, kennari byggingagreina
Hanna Þórey Guðmundsdóttir, forstöðumaður bókasafns

Bragi S. Óskarsson, kennari byggingagreina
Þóra Ýr Sveinsdóttir, kennari starfsbrautargreina

Ómar Kristinsson, enskukennari
Svava Hrönn Magnúsdóttir, náms- og starfsráðgjafi

Baldvin B. Ringsted, stærðfræði- og enskukennari og fagstjóri erlendra tungumála
Björk Jónsdóttir, kennari starfsbrautargreina

Magni Magnússon, kennari rafiðngreina
Harpa Birgisdóttir, brautarstjóri og kennari hársnyrtigreina

Ólafur H. Björnsson, fagstjóri og kennari íþróttagreina
Bryndís Indíana Stefánsdóttir (Inda), brautarstjóri starfs- og sérnámsbrauta

Jóhannes Áslaugsson, stuðningsfulltrúi
Marína Sigurgeirsdóttir, kennari matvælagreina