Fara í efni

Nítján söngatriði í Sturtuhausnum í Hofi nk. fimmtudagskvöld

Það stefnir í flottan Sturtuhaus í næstu viku.
Það stefnir í flottan Sturtuhaus í næstu viku.

Tuttugu flytjendur koma fram í nítján söngatriðum á Sturtuhausnum - söngkeppni VMA 2017 – í Menningarhúsinu Hofi fimmtudagskvöldið 26. janúar nk.

Eftirtaldir flytjendur stíga á svið í Sturtuhausnum 2016:

Tinna Björg Traustadóttir - I'm not a girl - Britney Spears
Lilla Steinke – Niðavellir - Skálmöld
Særún Elma - On my own (Les Miserables) - Samantha Barks
Sunna Þórðardóttir - I who have nothing - Jordin Sparks
Rakel Mýrmann Þorsteinsdóttir - Hallelujah - Leonard Cohen
Birna Ösp Traustadóttir - Toggi og hulduhóllinn - Baggalútur 
Guðbjörg Helga Aðalsteinsdóttir - Not in that way - Sam Smith
Kristín Haraldsdóttir - Hjá þér – Sálin hans Jóns míns 
Sigríður Hafstað - Isle of flightless bird - Twenty one Pilots
Örn Smári Jónsson - All of me - John Legend
Brynja Ploy - Problem - Ariana Grande
Svana Rún Alladóttir - Ex’s & oh´s - Vanessa Hudgens
Sindri Snær Konráðsson  - Exit Music - Radiohead      
Alexandra Guðný Berglind Haraldsdóttir - I dont know my name - Grace VanderWaal
Ari Rúnar Gunnarsson - Snow (hey oh) - Red hot chili peppers
Vigdís Anna Sigurðardóttir - Mercy - Shawn Mendes                
Kristín Tómas. - My Simphony - Frumsamið 
Thelma Sól Hörpudóttir - Here - Alessia Cara
Anton Líni Hreiðarsson - Creep - Radiohead

Þátttakendur í Sturtuhausnum fá tækifæri til þess að æfa sín atriði vel og vandlega í næstu viku, fleiri rennsli verða nú í boði með hljómsveitinni en nokkru sinni áður í Sturtuhausnum, sem ætti að skila enn meiri fagmennsku en áður á sviðinu í Hofi nk. fimmtudagskvöld.  

Kynnar á Sturtuhausnum verða þeir Nökkvi Fjalar og Egill Ploder úr Áttunni.

Í dómnefnd verða starfandi tónlistarmenn í fremstu röð nú um stundir – Salka Sól Eyfeld úr hljómsveitinni Amabadama, Arnar Freyr úr Úlfur Úlfur og Valdimar Guðmundsson, söngvari hljómsveitarinnar sem við hann er kennd, Valdimar.

Hljómsveit kvöldsins skipa: Hallgrímur Jónas Ómarsson, gítar og tónlistarstjórn, Valgarður Óli Ómarsson gítar, Stefán Gunnarsson bassi og Arnar Tryggvason hljómborð.

Miðasala fer fram á mak.is og tix.is en miðaverðið er 2500kr. Takmarkaður miðafjöldi.