Árshátíð VMA 2026
26.02.2026
Árshátíð VMA 2026
Undirbúningur hjá stjórn Þórdunu stendur nú sem hæst en fram undan er einn stærsti og glæsilegasti viðburður skólaársins – Árshátíð VMA 2026 sem ber þemað Skógur töfranna.
Árshátíðin fer fram 6. mars í Íþróttahöllinni á Akureyri þar sem nemendur munu stíga inn í töfrandi umgjörð, njóta góðs matar og dansa fram á nótt.
Dagskrá kvöldsins
-
⏰ Húsið opnar kl. 19:00
-
🍽️ Borðhald hefst kl. 19:30
-
🎉 Ballið byrjar kl. 23:00
Veislustjórar kvöldsins verða hinir frábæru Sveppi og Pétur, sem sjá til þess að stemningin verði í hæstu hæðum frá upphafi til enda.
Fram koma
-
🎧 DJ Kurtheisi
-
🎤 Klara Einars
-
🎤 Nussun og Húgó
-
🎤 Saint Pete
-
🎤 Færibandið
Miðasala
🎟️ Miðasala fer fram hér: https://app.glaze.is/t/bIiGO2pPrOcR1ab8mmxi
💰 Miðaverð:
-
9.500 kr. fyrir meðlimi Þórdunu
-
13.500 kr. fyrir aðra (þau sem hafa skráð sig úr Þórdunu eða eru í öðrum skóla)