Arnór Freyr fann fóðurvélinni nýtt hlutverk
Á síðustu önn í vélstjórnarnáminu vinna nemendur lokaverkefni. Í sumum tilfellum er um að ræða einstaklingsverkefni en önnur verkefni eru unnin af tveimur eða fleiri nemendum. Núna þegar styttist í annarlok leggja nemendur nótt við dag til þess að ljúka við verkefni sín. Einn þeirra sem útskrifast í lok maí sem vélstjóri er Arnór Freyr Fjólmundsson frá Hofsósi. Lokaverkefnið er hagnýtt í meira lagi því Arnór hefur unnið að því að smíða og setja saman vél og gír í smábát sem hann keypti sér fyrir nokkrum árum síðan.
Arnór Freyr vissi bærilega vel við upphaf námsins í VMA hvað hann ætlaði að verða þegar hann yrði stór. Hann hafði velt húsasmíði fyrir sér en hvarf frá þeim áformum og ákvað að innritast í grunndeild málmiðngreina að tíunda bekk loknum – með það í huga að fara áfram í vélstjórnarnám. Og nú sér fyrir endann á því, brautskráningin er handan við hornið.
Áhugi á málmsmíði og vélum er Arnóri Frey í blóð borinn. Forfeður hans hafa rekið fyrirtækið Stuðlaberg á Hofsósi í ríflega sextíu ár en það fyrirtæki var m.a. þekkt fyrir framleiðslu á hljóðkútum og þessi arfleifð hefur gengið kynslóða á milli í fjölskyldunni.
„Námið hefur bara gengið vel, þetta hefur verið fjölbreytt og skemmtilegt. Ég geri ráð fyrir að bæta við mig rafvirkjanum í kjölfarið og fara til sjós eða starfa í landi. Það kemur bara allt í ljós síðar,“ segir Arnór.
En víkur þá sögunni að lokaverkefni Arnórs, sem hann hefur eytt ófáum klukkustundum í á síðustu vikum og mánuðum. Í stórum dráttum fólst verkefnið í því að taka gamla fóðurvél í sundur stykki fyrir stykki og endurnýta hana til þess að setja um borð í trillu sem Arnór keypti fyrir tveimur árum í Hafnarfirði. Um var að ræða gamlan norskan björgunarbát, ekki var mikið vitað um ástand vélarinnar þegar Arnór fékk trilluna en í ljós kom að það þurfti að útbúa nýjan vélbúnað. Fóðurvélin var áður í notkun á loðdýrabúinu á Syðra-Skörðugili í Skagafirði en þegar búrekstrinum var hætt var ekki lengur not fyrir hana.
„Úr fóðurvélinni tók ég bæði vél og dælu. Í staðinn fyrir að vera með hefðbundna vél og gír í bátnum nota ég glussarótor fóðurvélarinnar sem gír í bátinn. Ég þreifaði mig bara áfram í þessu, ég vissi að þetta væri hægt en ekki nákvæmlega hvernig væri best að gera þetta. Þetta er mikil endurnýting því tannhjólin í gírnum eru úr gömlum rennibekk. Skrúfuna átti ég til en ég þurfti að smíða öxul.
Ég hef verið að vinna að þessu um helgar núna á vorönninni í verkstæðisrými á Hofsósi og einkum hafa hlutirnir verið að taka á sig mynd núna á síðustu dögum. Ég sé fyrir endann á öllu er lýtur að vélbúnaðinum í bátnum og ég stefni að því að koma með hann hingað til Akureyrar og sýna hann þegar við kynnum lokaverkefnin okkar. En málningarvinnan og ýmis önnur frágangsvinna er eftir þannig að ég get ekki á þessu stigi sagt til um hvenær báturinn verður sjóklár, en vonandi einhvern tímann í sumar,“ segir Arnór.