Fara í efni

Ari Baldursson kennari látinn

Ari Baldursson, kennari í rafiðngreinum við VMA, lést á heimili sínu í gær, 67 ára að aldri.

Ari hóf að kenna í VMA á haustönn 2014 og var hann annar tveggja aðalkennara nemenda í rafeindavirkjun. Hann hætti að kenna í fullu starfi sl. vor en var í stundakennslu í rafeindavirkjun nú á haustönn.

Verkmenntaskólinn á Akureyri syrgir farsælan kennara og traustan og góðan samstarfsmann. Starfsfólk og nemendur VMA votta eiginkonu Ara, börnum, barnabörnum og öðrum ástvinum dýpstu samúð.