Anna Lovísa og Emilía Björt keppa í Söngkeppni framhaldsskólanna á morgun
Anna Lovísa Arnarsdóttir og Emilía Björt Hörpudóttir verða fulltrúar Verkmenntaskólans á Akureyri í Söngkeppni framhaldsskólanna 2026 sem fer fram í Háskólabíó laugardaginn 11. apríl kl. 20:45. Keppnin verður í beinni útsendingu á RÚV.
Alls taka 25 framhaldsskólar þátt í keppninni í ár og því ljóst að samkeppnin verður hörð.
Í dómnefnd sitja þekkt og virt listafólk úr íslensku tónlistarlífi: Bríet, Helgi Björns og Þormóður Eiríksson. Kynnar kvöldsins verða Ágúst Þór Brynjarsson og Jóna Margrét Guðmundsdóttir.
Anna Lovísa og Emilía Björt unnu sér inn þátttökuréttinn með sigri í hæfileikakeppninni Sturtuhausnum þann 22. janúar 2026, þar sem þær fluttu lagið Something in the Orange eftir Zack Bryan með miklum glæsibrag. Þær munu flytja sama lag í keppninni á laugardagskvöldið.
VMA sendir þeim hlýjar kveðjur og óskar þeim góðs gengis í keppninni. Áhorfendur geta stutt við þær í símakosningu með því að hringja í 900-9123.
Nánari upplýsingar og miðasala má finna á heimasíðu keppninnar.