Ánægjulegar heimsóknir yngstu kynslóðarinnar
27.02.2026
Alltaf er jafn ánægjulegt að fá góða gesti í heimsókn og sýna þeim fjölbreytta starfsemi skólans. Ef því verður við komið er leitast við að verða við öllum óskum um heimsóknir í skólann.
Í þessum mánuði hafa tveir hópar leikskólanema heimsótt VMA með kennurum sínum og umsjónarfólki, annars vegar komu til okkar sl. miðvikudag krakkar á leikskólanum Tröllaborgum á Akureyri og hins vegar kom 16. febrúar sl. stór hópur krakka í Lundarsels á Akureyri.
VMA þakkir kærlega fyrir þessar ánægjulegu heimsóknir. Það er hreint ekki ósennilegt að innan nokkurra ára hefji enhverjir af þessum áhugasömu krökkum nám í VMA. Við hlökkum til að taka á móti þeim!