Fara í efni

Allir í Lífshlaupið!

Núna þegar sól er smám saman að hækka á lofti og hún færir aukinn yl í kroppinn með hverjum deginum sem líður er ástæða til að huga að hollri hreyfingu og útivist. Febrúar er mánuður hreyfingar og þess vegna er hið árlega Lífshlaup í þessum mánuði, 1.-28. febrúar.

Lífshlaupið er heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sem höfðar til allra aldurshópa. Það á sér tuttugu ára sögu, hófst árið 2005

Í Lífshlaupinu eru landsmenn hvattir til þess að huga að sinni daglegu hreyfingu og auka hana eins og kostur er, hvort sem er í frítíma, vinnu eða skóla. 

Lífshlaupið stendur fyrir:

Grunnskólakeppni 1.-28 febrúar fyrir 15 ára og yngri (tvær vikur)
Framhaldsskólakeppni 1.-28. febrúar fyrir 16 ára og eldri (tvær vikur)
Vinnustaðakeppni 1.-28. febrúar (fjórar vikur)
Hreystihópar 60+ 1.-28. febrúar (fjórar vikur)

Skrá má alla hreyfingu niður ef hún nær minnst 30 mínútum samtals á dag hjá fullorðnum og minnst 60 mínútum samtals á dag hjá börnum og unglingum. Tímanum má skipta upp í nokkur styttri tímabil yfir daginn s.s. 10 til 15 mín í senn.

Vinnustaðir, skólar og hreystihópar 60+ eru hvattir til að taka þátt og nota þannig tækifærið til að efla líkama og sál með því að hreyfa sig daglega.

Verkmenntaskólinn hvetur nemendur og starfsmenn til þess að verka virkir í Lífshlaupinu og hreyfa sig sem aldrei fyrr. Hreyfing er besta lyfið við allskyns kvillum, það er gömul saga og ný og hefur margoft verið staðfest í rannsóknum.