Aldrei of seint að læra
„Það er aldrei of seint að læra,“ segir Mayflor Perez Cajes, sem stundar nám á listnáms- og hönnunarbraut VMA og stefnir á að útskrifast sem stúdent næsta vor. Hún er 43 ára gömul og býr í Grímsey. Tilviljun ein réði því að hún fór að leggja rækt við listnám og listsköpun. Þá opnaðist Mayflor nýr heimur.
Mayflor er fædd á Filipseyjum en hún kom til Íslands þegar hún var átta ára gömul og bjó í tæpan áratug með fjölskyldu sinni í Ólafsvík. Síðan lá leiðin norður og alla leið út í Grímsey. Mayflor og eiginmaður hennar, sem er frá Hjalteyri en hefur búið í Grímsey frá blautu barnsbeini, eiga hlut í útgerð í Grímsey og fiskmarkaðnum þar. Hann er í eynni meira og minna allt árið en síðustu vetur hefur Mayflor verið meira yfir vetrarmánuðina á Akureyri og fylgt börnum þeirra eftir í skóla og jafnframt hefur hún stundað nám við VMA.
Listnám hóf Mayflor á myndlistarnámskeiði hjá Guðmundi Ármanni og Billu í SÍMEY og í framhaldinu tóku nokkur þeirra sem sóttu námskeiðið sig saman og opnuðu vinnustofu þar sem þau lögðu rækt við listsköpun sína. Síðar hélt Mayflor áfram myndlistarnámi í kvöldskóla listnáms- og hönnunarbrautar og að honum loknum lá leiðin í dagskóla til þess að ljúka fullgildu námi af brautinni til stúdentsprófs. Áður hafði hún lært tækniteiknun í Iðnskólanum í Hafnarfirði og naglafræði á námskeiði á Akureyri.
Mayflor segist njóta þess að vera í sterkum tengslum við náttúruna í Grímsey og hún sæki innblástur í hana. Meðal annars hefur hún skapað einstæða hönnunarvöru undir vörumerkinu Grímsey Design þar sem svartfuglsegg úr björgunum í Grímsey eru lýst upp.
„Það sem heillar mig í listsköpuninni er að geta tjáð mig án þess að setja mig í ramma. Ég nýt þess að vinna með náttúruna og flest mín verkefni tengjast Grímsey enda vil ég vekja sem mest athyli á eynni. Þegar ég horfi til baka sá ég aldrei fyrir mér að fara í listnám en ég er mjög ánægð með að hafa ákveðið að fara í það, það hefur hjálpað mér mikið og það mun styrkja mig í verkefni mínu Grímsey Design, sem ég mun halda áfram með og þróa,“ segir Mayflor Perez Cajes.