Akureyrarsegullinn er sterkur
Þegar Dagný Birta Arnardóttir innritaðist til náms í VMA á haustdögum 2014 var hún nokkuð viss um hvað hún ætlaði að verða þegar hún yrði stór. Hún sá fyrir sér að vinna við að hjálpa fólki. Hún valdi að fara á náttúruvísindabraut í VMA með það í huga að vera vel búin undir nám í læknisfræði og lauk stúdentsprófi vorið 2017.
Dagný Birta er Akureyringur en uppvaxtarárin voru í Noregi. Þangað flutti hún með fjölskyldu sinni þegar hún var þriggja ára gömul. Þegar komið var að því að fara í framhaldsskóla ákvað Dagný að flytja heim til Akureyrar og fara í VMA. Ári síðar fluttu foreldrar hennar einnig til Akureyrar.
Að loknu námi í VMA hafði Dagný hug á að læra læknisfræði í Bandaríkjunum og hún fór vestur og hóf þar nám. Hún komst hins vegar fljótlega að raun um að leiðin til þess að verða læknir var töluvert lengri í Bandaríkjunum en annars staðar og því var hún þar vestra aðeins í eitt ár. En þá lá leiðin til Slóvakíu.
Árið 2018 hóf Dagný nám í læknisfræði við Jessenius Faculty of Medicine í Martin, um 50 þúsund manna menningar- og háskólabæ í Slóvakíu. Námið þar fer fram á ensku og það auðveldaði valið að fara þangað í nám, Dagný segir að eftir langa dvöl í Noregi hafi hún verið betri í ensku en íslensku og því hentaði henni betur að fara í grunnnámið erlendis í stað þess að fara í læknisfræði í HÍ. Auk þess segist Dagný hafa heyrt mjög vel látið af náminu í Slóvakíu og því hafi hún ákveðið að sækja um þar.
Brautskráning úr náminu í Martin var sumarið 2024 og þá lá leið Dagnýjar til Íslands þar sem hún tók svokallað sérnámsgrunnár í læknisfræði – áður var þetta kallað kandidatsár. Hún segist hafa unnið tvo mánuði á Selfossi, sex mánuði á Akureyri, tvo mánuði á Egilsstöðum og aftur tvo mánuði á Akureyri. Síðan komu vangavelturnar um sérnám – hvaða leið skyldi valin í framhaldinu. Þegar Dagný kláraði námið í Slóvakíu segist hún hafa horft mest til skurðlækninga og á sérnámsgrunnárinu hafi hún líka heillast af lyflækningum. En barnalækningarnar hafi síðan orðið ofan á, henni hafi alltaf þótt þær heillandi og gefandi. Að fá sérfræðingsleyfi í barnalækningum er hins vegar ekki hrist fram úr erminni. Til að byrja með vinnur hún í tvö ár hér á landi í barnalækningum og því er hún núna á öðru ári sérnáms í barnalækningum – starfar sem stendur á Barnspítala Hringsins í Reykjavík. Í janúar nk. kemur Dagný síðan norður og starfar í til vors á barnadeild Sjúkrahússins á Akureyri. Það eru nokkur tímamót að Dagný skuli fá að taka hluta af sínu sérnámi í barnalækningum á Akureyri, til þessa hefur slíkt sérfræðinám verið eingöngu hér á landi á Landspítalanum. Dagný er með öðrum orðum að ryðja brautina í þessum efnum.
Námi barnalækna er ekki unnt að ljúka hér á landi. Sem fyrr segir getur Dagný tekið tvö ár hér á Íslandi en síðan þarf hún að fara til útlanda og ljúka sérfræðináminu og sinni starfsreynslu á barnadeildum sjúkrahúsa þar. Hún segist sem stendur horfa í þeim efnum til annað hvort Noregs eða Svíþjóðar. Að loknum þremur árum erlendis breytist staða Dagnýjar frá því að vera sérnámslæknir í barnalækningum í að vera sérfræðingur í barnalækningum. Og svo gæti bæst við einhver viðbótartími ef hún velur að fara í einhverja sérhæfingu innan barnalæknisfræðinnar.
En hvert skyldi Dagný síðan stefna þegar hún hefur lokið sérfræðingsnámi í barnalækningum? Hún er fljót til svars; stefnan er á að starfa á Íslandi, helst af öllu á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Ástæðan er einföld, segir Dagný, segull Akureyrar er sterkur, hvergi er betra að búa en á Akureyri.