Fara í efni

Akstur skólastrætisvagnsins hafinn

Í gær, 1. september, hóf skólastrætó Strætisvagna Akureyrar akstur á nýjan leik eftir sumarfrí. Vagninn er hugsaður fyrir nemendur VMA og MA að morgni dags.

Í gær, 1. september, hóf skólastrætó Strætisvagna Akureyrar akstur á nýjan leik eftir sumarfrí. Vagninn er hugsaður fyrir nemendur VMA og MA að morgni dags og er akstursleið hans og tímasetningar  eins og sl. vetur.

Akstursleið skólastrætisvagnsins er Þingvallastræti kl. 7:33 - Þórunnarstræti 7:35 - Glerárbrú  7:40  - Undirhlíð - Höfðahlíð - Skarðshlíð 7:46 - Smárahlíð  - Austursíða 7:48 - Bugðusíða - Miðsíða 7:50 - Vestursíða 7:52 - Bugðusíða - Merkigil 7:56  - Hlíðarbraut - Þingvallastræti 8:00 - Mýrarvegur - Mímisbraut kl. 8:04.