Fara í efni

Afsláttur hjá Iðnú

Hér kemur tilkynning frá Iðnú, bókaútgáfu, sem veitir nemendum okkar og starfsfólki afslátt af bókum dagana 4.-16. janúar n.k.

,,Við höldum áfram uppteknum hætti að gefa öllum nemendum, starfsfólki og kennurum í aðildarskólum IÐNÚ um allt land afslátt sem að þessu sinni er 10% og gildir fyrir allar vörur í skólavöruversluninni okkar að Brautarholti 8 og í vefversluninni okkar á www.idnu.is. Einnig fellum við tímabundið niður sendingarkostnað á öllum pöntunum sem koma í gegnum vefverslunina."

Að þessu sinni er gildistíminn á þessum vildarkjörum frá deginum í dag eða 4. janúar til 16. janúar n.k. Ef verslað er í Brautarholti 8 þá er nóg að framvísa meðfylgjandi auglýsingu sem er hér á pdf, png og jpg formi. Ef verslað er á www.idnu.is þá þarf að slá inn afsláttarkóðann: vor2021 inn í reitinn ,,Nýta afsláttarmiða“.