Fara í efni

Afar vel heppnað námskeið í Dublin

Kristjana með staðfestingarskjal um að hafa setið námskeiðið - ásamt írska kennararanum Miriam Stewa…
Kristjana með staðfestingarskjal um að hafa setið námskeiðið - ásamt írska kennararanum Miriam Stewart.

Síðastliðið sumar, nánar tiltekið 29. júní - 4. júlí, sótti Kristjana Pálsdóttir Margrétardóttir, sem kennir samfélagsgreinar í VMA, endurmenntunarnámskeið í Dublin á Írlandi sem bar yfirskriftina „Future thinking, an essential life skill for students.“ Kristjana fékk Erasmus+ styrk til þess að sækja námskeiðið.

Fyrir námskeiðinu stóð Europass, sem sérhæfir sig í að halda endurmenntunarnámskeið fyrir kennara um alla Evrópu. Á sama tíma voru haldin fleiri endurmenntunarnámskeið í Dublin og sóttu þau kennarar frá um tuttugu Evrópulöndum.

„Markmiðið með þessu námskeiði var að kynna okkur þá umgjörð hugsunarháttar sem bæði getur eflt hugrænan sveigjanleika - það er getuna til þess að hugsa á mismunandi hátt um tiltekin málefni eða sjá hlutina frá fleiru en einu sjónarhorni - og að vera hvati fyrir ungt fólk til þess að sjá hvaða áhrif þau geta haft á eigið líf, samfélagið sitt og alþjóðasamfélagið. Meðal annars var fjallað um vaxtarhugarfar, en nýlegar rannsóknir í sálfræði sýna jákvæða fylgni á milli þess og góð árangurs í námi, starfi og lífi. Þá var einnig lögð áhersla á þjálfun gagnrýnnar hugsunar og okkur á námskeiðinu kenndar virkilega hagnýtar aðferðir til þess að virkja og kenna ungu fólki gagnrýna hugsun,“ segir Kristjana og bætir við að hún hafi upphaflega ætlað að fara á jóganámskeið hjá sama námskeiðshaldara (Europass) en skráning hafi ekki verið næg.

„Mér var þá bent á þetta námskeið af Europass og ég ákvað að slá til. Ég hafði aldrei áður komið til Írlands og eitthvað togaði mig þangað. Þar sem ég er markvisst að vinna með að prófa nýja hluti og treysta innsæinu þá ákvað ég að slá til. Ég sé sko ekki eftir því. Mér fannst námskeiðið í einu orði sagt stórkostlegt. Það veitti mér bæði innblástur og verkfæri til þess að efla kennsluna mína og þá vonandi einnig að efla mína nemendur. Mennskan var í fyrirrúmi á námskeiðinu og þetta einhvern veginn talaði nákvæmlega inn í ákveðið tómrúm sem ég var í raun að upplifa í kennslunni og lífinu sjálfu. Þannig að ég segi bara stolt að þetta námskeið var „life changing“ fyrir mig, bæði faglega og persónulega.
Við vorum sjö konur á námskeiðinu, frá Ítalíu, Möltu, Þýskalandi og ég ein frá Íslandi, ásamt kennaranum Miriam Stewart sem er írsk. Það skapaðist mjög gott andrúmsloft hjá okkur og Miriam lagði ríka áherslu að toga okkur út fyrir þægindarammann, lét okkur tala saman og kynnast, sem lagði sterkan grunn fyrir námskeiðið. Það eitt sýndi mér gildi þess og hlutverk kennarans að stuðla að góðri menningu innan kennslustofunnar og búa til rými fyrir alla og að allir upplifi öryggi og ró til að mennta sig. Svo er hægt að byggja þekkingarsköpunina og vöxtinn ofan á það. Það sem stendur upp úr er að hafa kynnst þessum kollegum frá Evrópu og fá tækifæri til að spegla mitt samfélag við þeirra. Það stóð líka upp úr hvernig ég get eflt nemendur með því að breyta mínum hugsunarhætti gagnvart þeim, t.d. með því að efla vaxtarhugarfarið. Þá hef ég nýtt praktískar leiðir og leiki sem ég lærði á námskeiðinu í nánast öllum kennslustundum sem ég hef kennt það sem af er þessari önn. Og það sem ég er ekki síst mest þakklát fyrir er að hafa fengið mismunandi verkfæri í minn verkfærakassa sem miða að því að efla hugrænan sveigjanleika og gagnrýna hugsun ungs fólks, því að eins og svo oft er sagt að á tímum upplýsingaóreiðu er hugsunin og mennskan það mikilvægasta og sem mun fylgja okkur alla tíð, sama hverjar tækniframfarirnar verða,“ segir Kristjana Pálsdóttir Margrétardóttir.