Áfangaval fyrir haustönn 2026
10.03.2026
Áfangaval fyrir haustönn 2026 er opið og verður opið til kl. 08:00 miðvikudaginn 18. mars.
Leiðbeiningar um hvernig á að velja er hægt að finna hér.
Upplýsingar um hvaða áfangar eru í boði er hægt að finna hér og einnig undir annarplönum brauta.
Hægt er að finna áfangalýsingar hér.
Annarplön brauta er að finna undir Nám í boði á heimasíðu skólans.
Sviðsstjórar, umsjónarkennarar, námsráðgjafar og brautarstjórar veita aðstoð við áfangaval á viðtalstímum. Einnig veður boðið upp á aðstoð við áfangaval í stofu B02 þriðjudaginn 10. mars kl. 14:30-15:00, miðvikudaginn 11. mars kl. 9:00-9:30, fimmtudaginn 12. mars kl. 10:00-10:30 og þriðjudaginn 17. mars kl. 12:00-12:30 og 14:30-15:30.