Fara í efni

Aðalsteinn Þórsson með þriðjudagsfyrirlestur

Aðalsteinn Þórsson.
Aðalsteinn Þórsson.

Í dag, þriðjudaginn 7. mars, kl. 17-17.40, heldur myndlistarmaðurinn Aðalsteinn Þórsson  þriðjudagsfyrirlestur í Ketilhúsinu. Yfirskrift fyrirlestursins er Tvær hliðar: Um Einkasafnið og Mynd dagsins. Þar mun Aðalsteinn fjalla um tvö verkefni sem hann hefur unnið að undanfarið: annars vegar Einkasafnið, sem verður sýning hans í Ketilhúsinu í maí næstkomandi, og hins vegar Verk dagsins, en það verkefni snérist um að birta daglega eina nýja teikningu á bloggsíðunni teikningadag2016.blogspot.com allt árið 2016. 

Aðalsteinn Þórsson nam við Myndlistaskólann á Akureyri og síðar í Hollandi þar sem hann útskrifaðist með Master of Arts gráðu frá Dutch Art Institute 1998. Hann hefur síðan starfað sem myndlistarmaður, lengst af í Rotterdam, en flutti síðastliðið vor heim í Eyjafjörðinn. Aðalsteinn er þekktur fyrir fjölbreytni í efnisnotkun og vinnubrögðum. 

Aðgangur er ókeypis.