Aðalfundur Þórdunu og framboð í stjórn
Aðalfundur Þórdunu, nemendafélags VMA, fer fram 16. apríl kl. 12:30 í M01 þar sem kosið verður í nýja stjórn félagsins ásamt stjórn Leikfélags VMA. Aðalfundurinn er mikilvægur vettvangur þar sem nemendur geta haft áhrif á félagslíf skólans og tekið þátt í mótun þess.
Nú er opið fyrir framboð í allar stöður innan stjórnar Þórdunu. Framboðsfrestur rennur út 13. apríl kl. 17:00 og skulu framboð berast á netfangið solveig.elisabetardottir@vma.is.
Samkvæmt 3. gr. laga hjá Þórdunu kemur fram að:
Verkaskipting í nemendaráði skal vera eftirfarandi:
-
Formaður skipuleggur og stjórnar fundum nemendafélagsins ásamt því að bera ábyrgð á öllu sem Þórduna framkvæmir. Hann skal hafa góða yfirsýn yfir félagslíf skólans hverju sinni og er jafnframt tengiliður stjórnar við skólayfirvöld, önnur nemendafélög og fjölmiðla. Formaður er áheyrnarfulltrúi í skólanefnd og situr fyrir hönd nemenda VMA aðalþing Sambands íslenskra framhaldsskólanema.
-
Varaformaður er staðgengill formanns og gegnir formannsstörfum í fjarveru hans. Þurfi formaður að segja starfi stöðu sinni lausri skal varaformaður gegna skyldum hans þar til nýr formaður hefur verið kjörinn eða skipaður af Þórdunu. Varaformaður er tengiliður nemendaráðs við undirfélög Þórdunu og klúbba. Hann og kynningarfulltrúi skulu sjá um að kynna klúbba skólans. Varaformaður er formaður lagabreytinganefndar.
-
Ritari færir fundargerðir stjórnar og hefur ásamt kynningarfulltrúa yfirumsjón með útgáfustarfsemi á vegum félagsins. Ritari, í samráði við stjórn, skrifar ársskýrslu um starf félagsins, sem kynnt er á aðalfundi og birt á heimasíðu Þórdunu. Ritari sér um útgáfu félagsskírteina.
-
Gjaldkeri annast fjárreiður félagsins, bókhald, fjárvörslu og ávöxtun fjár. Gjaldkera ber að hafa bókhald félagsins klárt til samþykkis á aðalfundi á vorönn. Gjaldkeri þarf að hafa náð 18 ára aldri við upphaf stjórnarsetu.
-
Skemmtanastjóri er formaður skemmtinefndar og hefur yfirumsjón með öllu skemmtanahaldi á vegum nemenda skólans og veitir árshátíðarnefnd forystu.
-
Formaður Tækniráðs er umsjónarmaður eigna og ber ábyrgð á tæknibúnaði ásamt uppsetningu og frágang á tæknibúnaði á viðburðum Þórdunu. Honum ber skylda til að halda eignaskrá Þórdunu.
-
Kynningarfulltrúi hefur umsjón með kynningarmálum Þórdunu, s.s. uppfærslu heimasíðu Þórdunu, auglýsingar á vegum Þórdunu, o.fl., í samstarfi við ritara. Kynningarfulltrúi ber ábyrgð á því að viðburðir Þórdunu séu auglýstir með góðum fyrirvara og að allir þeir styrktaraðilar sem Þórduna er með styrktarsamning við hverju sinni fái sitt einkennismerki inn á auglýsingarnar.
-
Formaður hagsmunaráðs stjórnar og boðar fundi í hagsmunaráði ásamt því að sitja í skólaráði. Formaður hagsmunaráðs situr fyrir hönd nemenda VMA aðalþing Sambands íslenskra framhaldsskólanema (SÍF). Formaður hagsmunaráðs er tengiliður nemenda við SÍF og skal kynna sér starfsemi og taka þátt í starfi þess eins og kostur er. Formaður hagsmunaráðs tryggir þáttöku fulltrúa nemenda VMA á aðalþingi SÍF.
Einnig er opið fyrir framboð í stjórn Leikfélags VMA, leikfélagið er skipað formanni, varaformanni, fjármálastjóra, markaðsstjóri og meðstjórnanda. Kosið er í þessi embætti að vori. Leikfélagið setur upp a.m.k. eina sýningu á skólaári í samráði við stjórn Þórdunu.
Við hvetjum öll þau sem hafa áhuga á að taka þátt í öflugu félagslífi og hafa áhrif að bjóða sig fram.
-
Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:
Fundarsetning.
Kosning fundarstjóra og fundarritara.
Skýrsla stjórnar borinn upp til samþykktar.
Ársreikningar bornir upp til samþykktar.
Kosning skoðunarmanna reikninga.
Lagabreytingar.
Kosningar í stjórn Þórdunu
Kosning í Leikfélag VMA
Önnur mál.
Fundarslit.
-
Rétt til fundarsetu og tillögurétt hafa allir félagar Þórdunu og þeir einir hafa atkvæðisrétt. Þá hafa viðburðastjóri, skólameistari og forvarnafulltrúi og þeir sem nemendaráð býður sérstaklega að sitja fundinn, tillögurétt.