Fara í efni

15% afsláttur fyrir nemendur af námsgögnum hjá IÐNÚ

IÐNÚ ætlar að gefa öllum nemendum, starfsfólki og kennurum í aðildarskólum IÐNÚ um allt land 15% afslátt af öllum vörum í skólavöruversluninni okkar að Brautarholti 8 og í vefversluninni okkar á www.idnu.is. Einnig fellur tímabundið niður sendingarkostnaður á öllum pöntunum sem koma í gegnum vefverslunina.

Gildistíminn á þessum vildarkjörum verður frá 10. ágúst til 4. september n.k. Ef verslað er í Brautarholti 8 þá er nóg að framvísa meðfylgjandi auglýsingu sem er hér á pdf formi. Ef verslað er á www.idnu.is þá þarf að slá inn afsláttarkóðann: haust2020 inn í reitinn ,,Nýta afsláttarmiða“.